Egypsk flugvél hvarf yfir Miðjarðarhafi Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2016 07:12
Farþegaþota egypska flugfélagsins EgyptAir sem var á leið frá París til Kaíró í Egyptalandi í nótt hvar af ratsjám og er hún nú sögð hafa hrapað í Miðjarðarhafið. Í fyrstu bárust fregnir af því að neyðarkall hefði borist frá flugvélinni skömmu áður en hún hrapaði. Egypski herinn þvertekur hins vegar fyrir að slíkt kall hafi borist. Fimmtíu sex farþegar eru um borð auk tíu áhafnarmeðlima. Egypski herinn leitar nú vélarinnar með hjálp Grikkja en flugvélin var komin stutt inn í egypska lofthelgi þegar hún hrapaði. Veður var mjög gott á svæðinu þegar vélin hrapaði.Uppfært 10:30 Francois Hollande, forseti Frakklands, hefur staðfest að flugvélin brotlenti.Vísir/GraphicNEwsVélin, sem er af gerðinni Airbus A320 var í 37 þúsund feta hæð (11.277 metrar) þegar hún hvarf af ratsjám yfir austurhluta Miðjarðarhafsins en embættismaður segir í samtali við breska ríkisútvarpið að vélin hafi horfið rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Herinn varð var við neyðarsenda vélarinnar í nótt sem taldir eru hafa farið í gang við hrapið. Flugfélagið segir að á meðal farþega hafi verið þrjátíu Egyptar, fimmtán Frakkar, einn Breti auk fólks frá Belgíu, Alsír, Súdan, Tsjad og Portúgal. Þrjú börn eru um borð. Haft er eftir Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, á vef AP fréttaveitunnar, að ekki sé vitað hvers vegna flugvélin hrapaði og ekki megi útiloka neitt. Hann segir Frakka tilbúna til aðstoðar biðji yfirvöld Egyptalands um það. Sherif Ismail, forsætisráðherra Egyptalands, segir of snemmt að segja til um hvort að um slys eða árás hafi verið að ræða. Yfirvöld í Frakklandi hafa ekki viljað tjá sig um möguleikann á því að um árás hafi verið að ræða.AFP fréttaveitan hefur eftir heimildum að flugvélin hafi brotlent í hafinu í um 130 sjómílna fjarlægð frá grísku eyjunni Karpathos.
Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Erlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Fleiri fréttir Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjá meira