Tónlist

Aukamiðar á Airwavestónleika PJ Harvey komnir í sölu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Mikil spenna er fyrir tónleikum PJ Harvey á Iceland Airwaves í ár.
Mikil spenna er fyrir tónleikum PJ Harvey á Iceland Airwaves í ár. Vísir
Bætt hefur verið við nokkrum aukamiðum á lokakvöld Iceland Airwaveshátiðarinnar í ár. Um er að ræða sunnudaginn 6. nóvember en það kvöldið mun breska tónlistarkonan PJ Harvey spila í Valsheimilinu. Enn á eftir að tilkynna hvaða listamenn koma fram með rokkdrottningunni í Valsheimilinu.

Athygli er vakin á því að ekki er hægt að tryggja það að allir sem eiga miða á hátíðina í ár komist á tónleika PJ Harvey. Til þess að tryggja sanngirni í þeim málum hafa hátíðarhaldarar ákveðið að dreifa miðum til miðahafa í Hörpunni á föstudeginum. Allir þeir sem eru með armband geta fengið miða og gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Aðeins einn miði verður gefin fyrir hvert armband. Byrjað verður að dreifa miðum í hádeginu 4. nóvember.

Þetta kemur í veg fyrir að þeir sem vilja sjá og heyra í PJ Harvey þurfi að bíða klukkutímum saman fyrir utan Valshöll á sjálfan tónleikadaginn.

Miðaverð fyrir sunnudaginn er tæpar 9000 krónur en aukamiðarnir tryggja einnig aðgang á tónleika PJ Harvey. Frekar upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar en miðana má nálgast á Tix.

Hjá má heyra PJ Harvey taka lag sitt To bring you my love á tónleikum í París í síðasta mánuði.


Tengdar fréttir

PJ Harvey á Iceland Airwaves

Einnig breska sveitin Lush, bandaríska tónlistarkonan Julia Holter og Múm & Kronos Quartet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.