Bíó og sjónvarp

Will og Grace koma saman á ný

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þau Jack, Megan, Will og Grace voru hrókar alls fagnaðar í upphafi nýrrar aldar.
Þau Jack, Megan, Will og Grace voru hrókar alls fagnaðar í upphafi nýrrar aldar. mynd/nbc
Það verða ekki einungis vinirnir í Friends sem munu koma saman á næstunni heldur einnig hópurinn sem stóð að hinum geysivinsælu þáttum Will and Grace.

Þrátt fyrir að hafa alltaf verið í skugga Friends nutu þau Will og Grace vinsælda á árabilinu 1998 til 2006 og hefur þeim stundum verið hrósað fyrir að auka sýnileika LGBT-samfélagsins.

Þau Eric McCormack, sem lék Will Truman, og meðleigjandi hans Grace Adler, sem leikin var af Debru Messing, munu leiða saman hesta sína í febrúar ásamt þeim Megan Mullally (Karen Walker) og Sean Hayes (Jack McFarland).

Sjá einnig: Vinirnir koma saman á ný

Munu þau öll koma fram í sérstökum sjónvarpsþætti sem gerður verður til að heiðra handritshöfundinn James Burrows og þá 1000 þætti sem hann hefur komið að. Í þættinum munu leikararnir í Friends einnig koma fram, að frátöldum Matthew Perry, sem lék Chandler, eins og Vísir greindi frá á dögunum.

Fram kemur í Hollywood Life að þátturinn verði tekinn upp þann 24. janúar og komi fyrir sjónir almennings um mánuði síðar, þann 21. febrúar.

„Þetta verður endurkomuþáttur allra endurkomuþátta. Þið hafið ekki séð neitt í líkingu við hann," er haft eftir aðstandendum þáttarins.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.