Norsk börn fá ekki að leita réttar síns hjá SÞ Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 1. október 2016 07:00 „Við vonum að íslensk stjórnvöld skoði þessa bókun út frá sínum fyrri ákvörðunum, meðal annars um lögfestingu.“ Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi
Norsk stjórnvöld ætla ekki að undirrita valkvæða bókun við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, SÞ, sem veitir börnum heimild til að leita réttar síns hjá barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf. Í frétt Aftenposten segir að valkvæðu bókuninni hafi verið bætt við sáttmálann árið 2011. Alls hafa 29 lönd undirritað bókunina, þar á meðal Danmörk, Þýskaland, Spánn, Írland og Finnland, að því er Aftenposten greinir frá. Haft er eftir ráðgjafa hjá UNICEF í Noregi að ákvörðun norskra stjórnvalda sé mikil vonbrigði. Undirritunin hefði verið liður í auknu réttaröryggi barna í Noregi. Óskiljanlegt sé að stjórnvöld sjái ekki til þess að norsk börn hafi sama rétt til að leita réttar síns og börn í Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi. Í tilkynningu norskra stjórnvalda segir að mannréttinda sé vel gætt í Noregi. Í tilkynningunni segir meðal annars að hætta sé á að barnaréttarnefnd SÞ taki síður en norskir dómstólar mið af öðrum samfélagslegum sjónarmiðum þegar taka eigi tillit til þess sem barninu er fyrir bestu. Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að undirritun bókunarinnar hér yrði réttarbót fyrir íslensk börn. „Við vonum að íslensk stjórnvöld skoði þessa bókun út frá sínum fyrri ákvörðunum, meðal annars um lögfestingu.“ Barnasáttmálinn var fullgiltur fyrir Íslands hönd 1992. Hann var lögfestur 2013. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Erlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Sjá meira