Ferðalangarnir svöruðu því til að þeir væru nývaknaðir en hjónin, sem voru um sextugt, sögðust alveg vera í skýjunum yfir að geta gist í húsbílnum sínum á svo fallegum stað, við heimili forsetans Guðna Th. Jóhannessonar, bæði óárreytt og ókeypis. Reyndar hafði blásið nokkuð hressilega á þau um nóttina svo að nætursvefninn hafði ekki verið alveg samfelldur. Þau væru engu að síður að hugsa um að gista eina nótt í viðbót á planinu.
Friðrik vakti athygli á þessari uppákomu í hópnum Bakland Ferðaþjónustunnar þar sem hann segist í raun hafa verið að hæðast að fólkinu, í hófi þó, og ekki skammað þau eða neitt slíkt. Ferðamennirnir sem voru á vegum Friðriks í rúnti um höfuðborgarsvæðið voru þó forvitin um myndatöku Friðriks sem smellti af.

Friðrik sem er eldri en tvævetur í ferðabransanum er þeirrar skoðunar að þarna sé of langt gengið.
„Þetta er yfirgengileg frekja. Það vita allir að þetta er forsetaembætti, fánanum flaggað og allt,“ segir Friðrik. Hann sjái hluti sem megi betur fara daglega í starfi sínu en upp úr standi fólk á húsbílum, sérstaklega á svonefndum camperbílum, sem leggi hingað og þangað ókeypis en nýti sér þjónustu tjaldsvæða á sama tíma.
Hann hafi sjálfur orðið vitni að því á Lýsuhóli á Snæfellsnesi þegar fólk á slíkum bílum ók inn á tjaldsvæðið, nýtti sér sturtu og salernisaðstöðu auk þess að vaska upp í leiðinni. Svo var ekið á brot og lagt annars staðar, þar sem ekki þarf að borga fyrir gistingu. Umsjónarfólkið á Lýsuhóli hafi sagst ekki hafa mannskap til að fylgjast með öllum sem komi inn og út.
Friðrik segir eina lausn þá að setja upp skilti sem minni fólk á að bannað sé að gista yfir nótt á viðkomandi stöðum, svo sem á bílastæðinu við Bessastaði. Þá megi vel koma upp gerviupptökuvélum á tjaldstæðum þar sem væri skilti fyrir neðan þar sem fólk sé minnt á að greiða fyrir þjónustu.