Lífið

Aðeins munaði 36 atkvæðum á Guðmundi og Kyrrð: Mummi Messi fór á kostum og tók Moonwalk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðmundur Reynir komst ekki áfram.
Guðmundur Reynir komst ekki áfram. vísir/daníel Þór
Tvö atriði komust áfram í fyrsta undanúrslitaþætti Ísland Got Talent, sem sýndur var í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudagskvöldið. Baráttan var afar hörð og mjótt var á munum en að lokum stóðu þau Símon og Halla uppi sem sigurvegarar og hljómsveitin Kyrrð hafnaði í öðru sæti.  

Atkvæðin féllu jafnt hjá dómurum og skar því símakosningin úr um sigurvegara. Einungis nokkur atkvæði voru á milli Kyrrðar og Guðmundar Reynis, en sem fyrr segir eru aðeins tvö atriði sem fara áfram í úrslitaþáttinn.

Aðeins munaði 36 atkvæðum á Guðmundi Reyni og Kyrrð í símakosningunni. Guðmundur, stundum kallaður Mummi Messi, stóð sig virkilega vel í þættinum og má sjá atriðið hans hér að neðan. Einnig má sjá siguratriðin tvö.

Kyrrð Símon og Halla

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.