Tónlist

Nýtt textamyndband frá OMAM: Guðrún túlkar Svarta vatnið á einstakan hátt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðrún fer hér á kostum.
Guðrún fer hér á kostum. vísir
Íslenska ofurhljómsveitin Of Monsters and Men var rétt í þessu að gefa út nýtt textamyndband við lagið Black Water af plötunni Beneath the Skin, sem kom út 8. júní síðastliðið sumar.

Hljómsveitin hefur undanfarið haft þann vana á að gefa alltaf út textamyndband við lögin og fengið þekkta Íslendinga í verkefnin. Að þessu sinni má leikkonuna Guðrúnu Gísladóttur túlka lagið á einstakan hátt.

Myndbandið er unnið í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Tjarnargatan og má sjá hér að neðan. Of Monsters and Men kemur fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.