Nánast hægt að bóka oddaleik í Njarðvíkurseríunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2016 13:00 Logi Gunnarsson í oddaleiknum á móti Stjörnunni á dögunum. Vísir/Anton
Njarðvíkingar eru enn á ný komnir í oddaleik í úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta en þeir jöfnuðu metin í 2-2 á móti Íslandsmeisturum KR með góðum sigri í Ljónagryfjunni í gær. KR og Njarðvík mætast í DHL-höllinni klukkan 19.15 annað kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitunum á móti Haukum. Það hefur verið nánast hægt að bóka oddaleik í einvígunum hjá Njarðvíkurliðinu undanfarin ár því Njarðvíkingar eru nú komnir í oddaleik í fimmta einvíginu í röð. Þetta er líka fjórða úrslitakeppnin í röð þar sem Njarðvíkurliðið spilar að minnsta kosti einn oddaleik. Njarðvíkingar fóru einnig í oddaleik á móti Stjörnunni í átta liða úrslitunum í ár, þeir voru í oddaleik á móti Stjörnunni (8 liða) og KR (undanúrslit) í fyrravor og þá duttu þeir út út undanúrslitunum árið 2014 eftir oddaleik á móti Grindavík. Síðasta sería hjá Njarðvík þar sem úrslitin réðust ekki í oddaleik var í átta liða úrslitunum á móti Haukum vorið 2014. Njarðvík vann þá alla þrjá leikina en alla leikina þrjá með aðeins fjórum stigum. Njarðvíkingar eru að fara að spila sinn tíunda leik í úrslitakeppninni á morgun en þetta verður um leið áttundi leikur KR-liðsins. KR sló Grindavík út 3-0 í átta liða úrslitumSíðustu einvígi Njarðvíkinga í úrslitakeppninni:2016Undanúrslit KR 2-2 Njarðvík (Oddaleikur)8 liða úrslit Stjarnan 2-3 Njarðvík (Oddaleikur)2015Undanúrslit KR 3-2 Njarðvík (Oddaleikur)8 liða úrslit Njarðvík 3-2 Stjarnan (Oddaleikur)2014Undanúrslit Grindavík 3-2 Njarðvík (Oddaleikur)8 liða úrslit Njarðvík 3-0 Haukar20138 liða úrslit Snæfell 2-1 Njarðvík (Oddaleikur)
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Logi: „Ekkert sem ég þrái heitara en að fá annan séns til að kvitta fyrir síðasta oddaleik“ "Samheldni og liðskörfubolti skilaði þessum sigri í kvöld,“ segir Logi Gunnarsson, eftir sigurinn á KR. Njarðvík tryggði sér oddaleik gegn KR á föstudagskvöldið en leikurinn fer þá fram í DHL-höllinni. 13. apríl 2016 21:32 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - KR 74-68 | Njarðvík náði í oddaleik Njarðvík tryggði sér oddaleik gegn KR eftir ótrúlegan sigur, 74-68, í Ljónagryfjunni í kvöld. Liðin þurfa því að mætast aftur í fimmta leik á föstudagskvöldið í DHL-höllinni. 13. apríl 2016 20:45 Oddur, eigum við að hitta eitthvað i næsta leik? Haukur Helgi Pálsson og félagar í Njarðvík tryggðu sér oddaleik á móti Íslandsmeisturum KR á föstudagskvöldið eftir 74-68 sigur í Ljónagryfjunni í gær. 14. apríl 2016 10:00 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira
Logi: „Ekkert sem ég þrái heitara en að fá annan séns til að kvitta fyrir síðasta oddaleik“ "Samheldni og liðskörfubolti skilaði þessum sigri í kvöld,“ segir Logi Gunnarsson, eftir sigurinn á KR. Njarðvík tryggði sér oddaleik gegn KR á föstudagskvöldið en leikurinn fer þá fram í DHL-höllinni. 13. apríl 2016 21:32
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - KR 74-68 | Njarðvík náði í oddaleik Njarðvík tryggði sér oddaleik gegn KR eftir ótrúlegan sigur, 74-68, í Ljónagryfjunni í kvöld. Liðin þurfa því að mætast aftur í fimmta leik á föstudagskvöldið í DHL-höllinni. 13. apríl 2016 20:45
Oddur, eigum við að hitta eitthvað i næsta leik? Haukur Helgi Pálsson og félagar í Njarðvík tryggðu sér oddaleik á móti Íslandsmeisturum KR á föstudagskvöldið eftir 74-68 sigur í Ljónagryfjunni í gær. 14. apríl 2016 10:00