Misbrigði: Erindi II 7. apríl 2016 10:15
Annars árs nemar við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands munu næstkomandi föstudag opna sýninguna Misbrigði, Erindi 2: Eftirmál.Sýningin er afrakstur sjö vikna námskeiðs þar sem nemendur fengu það verkefni að hanna fatalínu úr notuðum fötum í samstarfi við Fatasöfnun Rauða Krossins. Fyrra erindi Misbrigða fór fram í Hörpu 18. mars síðastliðinn, en þá stóðu nemendur fyrir tískusýningu. Mikilvægi þess að endurnýta verður æ ljósara, enda er slæm staða í umhverfismálum mikið í deiglunni um þessar mundir. Fatahönnunarnemar hafa ekki farið varhluta af þeirri umræðu. Fataiðnaður eins og hann er í dag er gríðarlega ósjálfbær og í mörgum tilvikum ómannúðlegur. Feiknarleg eftirspurn eftir nýjum stílum og miklu úrvali af ódýrum fötum bitnar á gæðum fatnaðarins og aðbúnaði þeirra sem framleiða hann. Sú staðreynd stjórnast ekki síst af neyslumynstri Vesturlandabúa, og þeirri algengu viðleitni að hampa hraða og magni fremur en gæðum. Það er tímabært að nútíma neytendur endurhugsi fataneyslu sína. Í því felst að þeir læri að sjá gildið í, og hlúi að þeim dýrmætum sem nú þegar eru til, í stað þess að huga eingöngu að því nýjasta, sem svo sannarlega er ekki alltaf það verðmætasta. Opnun sýningarinnar verður í matsal Listaháskóla Íslands, Þverholti 11, kl: 17:00-20:00. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir. Nemendur sem sýna eru: Bergur Guðnason Darren Mark Guðjón Andri Hanna Margrét Kristín Karlsdóttir Magna Rún María Árnadóttir María Nielsen Signý Gunnarsdóttir Þóra ÁsgeirsdóttirLeiðbeinendur við verkefnið voru: Katrín María Káradóttir, Dainius Bendikas, Hildur Yeoman og Daníel Björnsson.
Mest lesið Vínrauðar partývarir sem stela senunni Glamour Völdu buxur fram yfir kjól Glamour Kristen Stewart rakaði af sér hárið Glamour Ikea í samstarf við Byredo Glamour Jólakjóllinn í ár er rómantískur og látlaus Glamour Bað konur í salnum að standa upp með sér Glamour Kjólarnir á lokakvöldinu í Cannes Glamour Met Gala 2017: Stjörnurnar skemmtu sér konunglega Glamour Ný hugmynd að buxum kynnt til leiks í Tókýó Glamour Fimm frábær lituð dagkrem Glamour