Lífið

Corden og Hathaway tókust á

Samúel Karl Ólason skrifar
Þáttastjórnandinn James Corden og leikkonan Anne Hathaway tókust á í þætti Corden á dögunum. Í stað þess að láta hnefana fljúga notuðust þau við orðin og „böttluðu“ nokkuð harkalega og héldu ekkert aftur af sér.

Hathaway sagði Corden vera versta útflutning Breta frá bólusóttinni og gerði hún einnig grín að áhorfi á þáttinn hans.

Corden gerði grín að breskum hreim Hathaway í kvikmyndum og myndum sem eru ekki taldar góðar. Óhætt er að segja að „battl“ þeirra sé nokkuð áhugavert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×