Bíó og sjónvarp

Rauk þunnur inn á klósett á fundi í sendistovu Föroya

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það nýjasta úr smiðju Jóns Gnarr er sjónvarpsþátturinn Borgarstjórinn sem hefur göngu sína á Stöð 2 þann 16. október.

Að þættinum koma margir af fremstu gamanleikurum þjóðarinnar og má búast við að þarna verði tekið á heimi pólitíkur af mikilli þekkingu og með beittum húmor enda kemur þessi þáttaröð frá fyrrverandi borgarstjóra sem hefur auðvitað verið í innsta kjarna í ráðhúsi Reykjavíkur og þekkir þar líklega hvern krók og kima.

Líklega má fullyrða að í heiminum hafi grínisti sjaldan verið í þessari stöðu við skrif á þáttaröð sem þessa.

Nú hefur Vísir fengið í hendurnar þriðju stikluna úr þáttunum og bíða eflaust margir spenntir eftir þessari seríu. Hér að ofan má sjá nýjasta sýnishornið úr þáttunum Borgarstjórinn.

Þar má sjá þegar borgarstjórinn mætir illa fyrir kallaður á fund í færeyska sendiráðinu. Jón Gnarr leikur sjálfan borgarstjórann sem virðist ekkert sérstaklega sáttur með þennan færeyska morgunverð þar sem boðið var upp á rúllupylsa og brauð, grind, spik og harðfisk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.