Viðskipti innlent

Kjartan Ragnarsson vill byggja hótel í Brákarey í Borgarnesi

Heiðar Lind Hansson skrifar
Svæðið þar sem hugmyndin er að hótelið rísi.
Svæðið þar sem hugmyndin er að hótelið rísi. mynd/gunnhildur lind
Kjartan Ragnarsson, einn aðaleigandi Landnámssetursins í Borgarnesi, hefur farið þess á leit að Borgarbyggð breyti skipulagi í Brákarey svo hægt verði að sækja um lóð undir hótel við Borgarneshöfn. Þetta kemur fram í bréfi Kjartans til sveitarfélagsins sem tekið var fyrir á fundi byggðarráðs 15. september, en hann hyggst sjálfur sækja um lóðina fyrir hönd rekstrarfélags Landnámssetursins.

Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands.vísir/anton
Núgildandi skipulag gerir ráð fyrir hafnarstarfsemi á svæðinu sem er á forræði Faxaflóahafna. Þar hafa lítil sem engin umsvif verið síðustu áratugi. „Þau tíu ár sem ég hef verið hérna þá hef ég alltaf talað um að þetta væri eyja í atvinnuleit,“ segir Kjartan, en Brákarey var áður meginvettvangur landbúnaðarvinnslu og iðnaðar í Borgarnesi. „Framtíð þessa byggðakjarna er ferðaþjónustan,“ segir Kjartan sem kveðst horfa til byggingar Reykjavik Marina hótelsins við gömlu höfnina í Reykjavík sem fyrirmyndar að því að auka athafnalíf í eynni.

Svæðið sem Kjartan hefur augastað á er elsti hluti hafnarinnar, svonefnd gamla bryggja. Hann segir um fallega staðsetningu að ræða, en þaðan er útsýni yfir Mýrar og út á Snæfellsnes. Hann er vongóður um framhaldið og hefur fengið jákvæðar undirtektir hjá sveitarstjórnarmönnum. „Hugmyndin hjá okkur er að sjálfsögðu að fá sterka fjárfestingu inn í dæmið. Þetta er langhlaup og eitthvað sem verður ekki hlaupið að í hvelli,“ segir Kjartan sem ítrekar að hugmyndin sé á frumstigi.

Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, segir hugmyndina áhugaverða. Hann minnir á að sveitar­félagið hafi ýmsar skyldur í þessu sambandi bæði hvað varðar deiliskipulag og jafnræðisreglu og að hugleiða þurfi vel öll skref í þeim efnum.

Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, kveðst vera ánægður með hugmyndina. „Sem kunnugt er er ekki mikið líf í höfninni í Borgarnesi. Hótel í þeim dúr sem Kjartan er að tala um myndi bara lífga upp á svæðið.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Íslendingar fljúga í Karíbahafi

Félagið heitir Dominican Wings og er dótturfélag litháíska flugfélagsins Avion Express. Um síðustu helgi flaug Airbus 320 vél Dominican Wings jómfrúarflug sitt frá Santo Domingo, höfuðborg Dómíniska lýðveldisins til Miami í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×