Viðskipti innlent

Markaðurinn fór fram úr sér: Vaxtalækkunin byggð á vitlausum tölum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm
Aðstoðarseðlabankastjóri sagði á stýrivaxtafundi í dag að síðasta vaxtalækkun hefði verði byggð á röngum forsendum að hluta þar sem skekkja hefði verði í verðbólgumælingu Hagstofunnar. Bætti seðlabankastjóri því við að viðbrögð markaðarins við þeirri ákvörðun hefði verið þannig að hann hefði tímabundið farið nokkuð fram úr sér. Þetta kemur fram í greiningu Íslandsbanka.

Peningastefnunefnd Seðlabankans hélt stýrivöxtum bankans óbreyttum í takti við spá flestra sem spá opinberlega fyrir um stýrivexti. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,25 prósent.

Viðbrögð á innlendum fjármálamarkaði við ákvörðun peningastefnunefndar voru þau í morgun að ávöxtunarkrafa óverðtryggra skuldabréfa hækkaði nokkuð. Veltan á markaði hefur hins vegar verið hófleg enn sem komið er.

Sjá einnig: Hagstofan vanreiknaði vísitölu neysluverðs í sex mánuði: Áhrif mistakanna hlaupa á milljörðum

Fyrstu skref í losun hafta fyrir 16. nóvember

Seðlabankastjóri nefndi á kynningarfundi vegna ákvörðunarinnar í morgun að næsta ákvörðun peningastefnunefndar verður 16. nóvember, en þá mun nefndin vera með í höndunum nýa verðbólgu- og hagvaxtarspá bankans og einnig verður þá væntanlega búið að stíga fyrstu skref í losun hafta. Ljóst er að nefndin verður þá með afar mikilvæga þætti er varðar ákvörðun um stýrivexti og næstu skref í peningastjórnuninni. Sagði Seðlabankastjóri að í ljósi væntanlegra skrefa í losun hafta gæti það orðið hluti af spá bankans í nóvember að hafa gengið sem spábreytu, en hingað til hefur bankinn verið með fast gengi sem forsendu í sínum spám.

Hafa ekki áhyggjur af kostnaði við stóran gjaldeyrisforða

Varðandi kostnað við núverandi gjaldeyrisforða, sem er umtalsverður fyrir Seðlabankann, sagði seðlabankastjóri að allir væru með stóran gjaldeyrisforða um þessar mundir og það væri kostnaðarsamt vegna þess að varasjóðsmyntirnar væru með lága vexti. Sagði hann að ekki væri rétt að gera of mikið úr þessum kostnaði, að hér væri ekki um vandamál að ræða þó svo að forðinn væri kominn nokkuð yfir lágmarksviðmið um stærð forðans. Einnig sagði hann að rétt væri að hafa það í huga að ekki væri búið að losa gjaldeyrishöftin og að bankinn yrði að vera með viðbúnað til að standast það útflæði sem reiknað væri með að í versta felli gæti orðið. Sagði hann að allskonar tækifæri yrðu í framtíðinni til að losa forðann og að vonandi sköpuðust aðstæður til að draga úr mun á innlendum og erlendum vöxtum þegar fram í sækir.




Tengdar fréttir

Stýrivextir óbreyttir

Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,25 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×