United náði aðeins jafntefli gegn West Ham | Sjáðu mörkin 27. nóvember 2016 18:15
Manchester United og West Ham skildu jöfn þegar þau mættust á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fjórða jafntefli United á heimavelli í röð. Það blés ekki byrlega fyrir Manchester United í upphafi. Strax á 2.mínútu kom Diafra Sakho West Ham yfir með skalla eftir aukaspyrnu Dimitri Payet. Zlatan Ibrahimovic var að dekka Sakho en missti hann frá sér við markteiginn. Zlatan átti þó eftir að bæta fyrir þau mistök. Hann jafnaði metin á 21.mínútu með skalla eftir frábæra sendingu Paul Pogba. Sjötta deildarmark Svíans. Sex mínútum síðar var Jose Mourinho rekinn upp í áhorfendastúku fyrir mótmæli. Hann var afar ósáttur með gult spjald sem Paul Pogba fékk frá Jonathan Moss dómara fyrir leikaraskap og lét Moss heyra það. Dómurinn var þó hárréttur hjá Moss og Mourinho settist í stúkuna. West Ham vildi fá vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik þegar boltinn fór í hönd Ander Herrara inni í vítateig en ekkert var dæmt. Staðan í hálfleik var því 1-1. Síðari hálfleikur var svo hin besta skemmtun. United fékk fjölmörg færi til að komast yfir en Darren Randolph í marki West Ham var magnaður. Jesse Lindgard náði að koma boltanum í netið eftir stangarskot Henrikh Mkhitarian en var dæmdur rangstæður. Bæði lið fengu svo færi á lokamínútum til að skora. Zlatan Ibrahimovic komst einn í gegn en missti boltann of langt frá sér og svo komst Ashley Fletcher í þröngt færi, einn gegn David De Gea sem varði vel í horn. Lokatölur urðu því 1-1 og fjórða jafntefli Manchester United á heimavelli í röð því staðreynd. Það eru heil 26 ár síðan United vann ekki í fjórum heimaleikjum í röð. Þeir eru í 6.sæti með 20 stig en West Ham er í 16.sæti með 12 stig.
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti „Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“ Fótbolti Kærasti Fallons Sherrock niðurbrotinn eftir sárt tap Sport Þorsteinn kynnti Bandaríkjafara Fótbolti Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Þriðji Maldini-ættliðurinn sem er valinn í landsliðið Fótbolti Hvar er þessi? „Þetta er eitthvað biblíudæmi“ Körfubolti „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Körfubolti Fleiri fréttir Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Sjá meira