Finnskur nýnasisti í haldi vegna líkamsárásar sem leiddi til dauða manns Atli Ísleifsson skrifar 19. september 2016 13:56 Maðurinn sem hefur verið handtekinn er virkur liðsmaður Finnsku andspyrnuhreyfingar, hreyfingar nýnasista í Finnlandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Lögregla í Helsinki hefur upplýst að hún sé með mann í haldi vegna líkamsárásar sem var gerð á mótmælum nýnasista í finnsku höfuðborginni fyrir rúmri viku. Fórnarlamb árásarinnar, 28 ára karlmaður, lést nokkru síðar af völdum höfuðáverka. Blætt hafði inn á heila mannsins skömmu eftir að hann var úrskrifaður af sjúkrahúsi, þangað sem hann var fluttur eftir að hafa orðið fyrir árásinni. Í frétt YLE er haft eftir talsmanni lögreglu að atburðalýsing hafi skýrst nokkuð eftir að hópur manna var yfirheyrður og búið er að fara yfir myndir á öryggismyndavélum. Maðurinn sem hefur verið handtekinn er virkur liðsmaður Finnsku andspyrnuhreyfingar, hreyfingar nýnasista í Finnlandi. Finnska blaðið Helsingin Sanomat greinir frá því að maðurinn sé fæddur árið 1990 og hafi áður verið dæmdur fyrir fjölda brota. Lögreglumaðurinn Teemu Kruskopf segist hafa rætt við fórnarlambið á sjúkrahúsinu eftir árásina þar sem maðurinn sagðist hafa hrækt í áttina að hópi mótmælenda fyrir utan aðallestarstöð borgarinnar þar sem þeir höfðu safnast saman. Kruskopf segir að fórnarlambið hafi sagt að til orðaskipta hafi komið áður en hann hélt á brott. Á þá einn mótmælenda að hafa hlaupið á eftir manninum, sparkað í bringu hans svo hann féll um koll og sló höfuðið í stéttina.
Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Fleiri fréttir Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Sjá meira