Viðskipti innlent

Þykir fátt eins endurnærandi og að rækta garðinn sinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Iða Brá tekur við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingabankasviðs af Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni.
Iða Brá tekur við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingabankasviðs af Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni. Vísir/Pjetur
Iða Brá Benediktsdóttir var á dögunum ráðin framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Sem slík er hún yfirmaður markaðsviðskipta, greiningardeildar og fyrirtækjaráðgjafar. Auk þess situr framkvæmdastjóri í Framkvæmdastjórn bankans. Iða Brá tók við starfinu af Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni.

Iða Brá útskrifaðist með B.Sc.-próf í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og tók svo M.Sc. í fjármálum frá Rotterdam School of Management í Hollandi árið 2004. Að auki er hún með með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá lætur vel af dvölinni í Hollandi.

Iða Brá segir að námið í Rotter­dam School of Management hafi verið gott. Þá hafi líka hentað að flytja til Hollands þar sem maðurinn hennar var framkvæmdastjóri hjá Samskipum í Hollandi.

Iða Brá byrjaði að vinna í bankakerfinu árið 1999 og hefur komið víða við hjá Arion banka og forverum hans. Hún hefur meðal annars starfað í fyrirtækjaráðgjöf, grein­ingar­deild, fjármögnun bankans, stýrt samskiptum við erlendar fjármálastofnanir, verið í fjárfestatengslum og stýrt samskiptasviði bankans. „Nú síðast var ég forstöðumaður Einkabankaþjónustu þar sem við stýrum eignum fyrir fjársterka aðila, fyrirtæki og stofnanir,“ segir hún.

Iða Brá sér tækifæri í nýja starfinu og fyrir Arion banka fram undan. „Það eru hagstæðar aðstæður í íslensku efnahagslífi um þessar mundir, kröftugur hagvöxtur og fjárfesting að taka við sér. Þá hillir nú undir afléttingu fjármagnshafta sem felur í sér tækifæri fyrir fjárfesta og fyrirtæki. Við höfum einnig séð töluverðan áhuga á Íslandi erlendis enda kemur Ísland vel út núna í alþjóðlegum samanburði. Verðbólga lítil, góður hagvöxtur, lítið atvinnuleysi auk þess sem skuldir ríkissjóðs hafa lækkað verulega,“ segir hún.

Iða Brá á fjölmörg áhugamál sem hún reynir að sinna þegar hún er ekki í vinnunni. „Ég er með þrjú börn á aldrinum fjögurra til sextán ára. Mikill hluti þess tíma sem er aflögu fer í að fylgja þeim eftir í tómstundum og námi. Svo höfum við reynt að haga áhugamálum þannig að þau geti tekið þátt í þeim. Þannig að við förum mikið á skíði og reynum að ferðast eins og hægt er. Og ég les frekar mikið,“ segir Iða Brá. Þá verði yfirleitt skáldsögur fyrir valinu.

Á sumrin leggur Iða Brá áherslu á að rækta upp garðinn við heimili sitt. „Mér finnst fátt jafn endurnærandi og að vinna í garðinum.“

Iða Brá verður fertug á árinu og hafði hugsað sér að nýta árið til þess að verða slarkfær á píanó í tilefni tímamótanna. „Sjáum til hvernig það gengur.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×