Erlent

Fjölmargir slasaðir eftir lestarslys í Frakklandi

Atli Ísleifsson skrifar
Lestin á að hafa keyrt á tré sem hafði fallið á lestarteinana.
Lestin á að hafa keyrt á tré sem hafði fallið á lestarteinana. Vísir/Getty
Um tíu manns eru alvarlega slasaðir eftir lestarslys í suðurhluta Frakklands fyrr í dag. AFP hefur þetta eftir talsmanni yfirvalda á vettvangi.

Að sögn infos140 átti slysið sér stað í bænum Aaint-Aunès, austur af Montpellier.

Lestin á að hafa keyrt á tré sem hafði fallið á lestarteinana, en mikið óveður hefur verið þar síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×