Fyrirtækið tilkynnti í gær að framleiðslu og sölu símanna hefur verið hætt vegna eldhættu vegna galla í rafhlöðu þeirra. Fyrirtækið innkallaði 2,5 milljónir síma og skipti þeim út fyrir nýja sem áttu að vera öruggir.
Nú hafa hins vegar komið upp atvik þar sem einnig hefur kviknað í nýju símunum. Samsung hefur ekkert sagt um hvað sé að, né hvort að starfsmenn viti hvað sé að.
Eigendur símanna hafa verioð beðnir um að skila þeim og fá endurgreiðslu eða aðra vörur frá Samsung. Þá eru þeir beðnir um að senda símana ekki í flugi þar sem það gæti skapað mikla hættu ef þeir springa.
Reuters fréttaveitan segir greinendur gera ráð fyrir því að skaðinn gæti verið um 17 milljarðar dala. Þá hafi vörumerki Samsung einnig orðið fyrir miklum skaða og mögulegt er að vandinn muni hafa áhrif á framtíðartekjur fyrirtækisins.
Samsung hefur þó einnig verið hrósað fyrir viðbrögðin vegna vandans. Skaðinn er hins vegar sá að fyrirtækið þarf að útskýra hvað kom upp á og gera notendum ljóst að sjónvörp þeirra, hátalarar eða næstu símar muni ekki springa í loft upp. Fyrirtækið þarf að byggja traust upp á nýtt.
Hlutabréf fyrirtækisins hafa lækkað um ellefu prósent í vikunni og stefnir í verstu viku þeirra frá árinu 2008.