Sagður hafa skipulagt árásir í Frakklandi Samúel Karl Ólason skrifar 6. júní 2016 12:08 Franskir lögregluþjónar. Vísir/EPA
Leyniþjónustan í Úkraínu fullyrðir að franskur ríkisborgari sem handtekinn hafi verið í landinu í síðasta mánuði, hafi ráðgert stóra hryðjuverkaárás í Frakklandi á meðan á Evrópumótinu í Fótbolta stæði, en mótið hefst á föstudag. Ekki liggur þó fyrir að mótið sjálft hafi verið skotmark. Maðurinn er tuttugu og fimm ára gamall og var hann handtekinn á landamærum Úkraínu og Póllands með mikið magn vopna í sínum fórum. Talsmaður leyniþjónustunnar segir við BBC að hann hafi lagt á ráðin um fimmtán árásir í landinu og mun hann vera rekinn áfram af öfgafullri þjóðerniskennd. Hann er sagður hafa verið með fjölda skotvopna, hvellhettur og um 125 kíló af sprengiefninu TNT. Talsmaðurinn segir manninn hafa skipulagt árásir á bænahús gyðinga og múslima, brýr og fjölfarnar götur. Hann hefur verið ákærður fyrir smygl og hryðjuverk. Hann er ekki sagður hafa verið með sakaskrá. Samkvæmt Sky News hafði maðurinn verið undir eftirliti lögreglu frá því í desember. Hér að neðan má sjá myndband sem var tekið þegar maðurinn var handtekinn.
Hryðjuverk í Evrópu Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Fleiri fréttir Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Sjá meira