Jólatónleikar Björgvins haldnir í tíunda skipti Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 8. desember 2016 11:00 Jólagestir Björgvins verða í Höllinni á laugardaginn. Mynd/MummiLú Mynd/MummiLú
Þetta byrjaði reyndar árið 2003 með fyrstu Jólagestum Björgvins á Nordica hótelinu og þar var ég með góða gesti eins og Siggu Beinteins, Eyjólf Kristjáns, Jóhönnu Vigdísi og Pál Rósinkranz og frábæra hljómsveit. Okkur langaði að gera þetta með svolitlum „bravúr“ í Las Vegas stílnum með stórum borðum, fallega skreyttum sal og fjórrétta „a la carte“ jólamatseðli. Þetta tókst mjög vel og var vel sótt í ein 10 skipti fyrir fullum sal. Það var upphafið og var allt byggt upp á Jólagestaplötunum mínum eins og nú,“ segir Björgvin Halldórsson, spurður út í upphaf Jólagesta Björgvins, en tónleikarnir verða haldnir í tíunda sinn á laugardaginn, 10. desember, í Höllinni. Að vanda verður gestalistinn ekki af verri endanum, fjölmargir þjóðþekktir söngvarar stíga á svið og syngja inn jólin ásamt Stórsveit Jólagesta undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit undir stjórn Gretu Salome, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, Karlakórnum Þröstum undir stjórn Jóns Karls Einarssonar og Gospelkór Reykjavíkur undir stjórn Óskars Einarssonar. Tónleikarnir hafa notið mikilla vinsælda í gegn um árin. „Ég hef verið svo heppinn að hafa fengið að vinna með fyrsta flokks fagfólki frá byrjun, svo á ég frábæra fjölskyldu sem hefur staðið eins og klettur við hliðina á mér, ásamt úrvals tónlistar- og tæknifólki sem hefur gert þessa tónleikaröð ógleymanlega,“ segir Björgvin og bætir við að ekki megi gleyma Ísleifi Þórhalls og hans fólki hjá Senu Live sem hefur haldið utan um tónleikana með stæl með þeim Gunnari Helgasyni leikstjóra og Birni G. Björnssyni sem hefur umsjón með handriti. Flestallir þekkja jólalagið vinsæla Ég hlakka svo til, sem dóttir Björgvins, Svala, söng svo eftirminnilega um árið. Hún hefur verið gestur á tónleikunum þó nokkrum sinnum og fengið virkilega góð viðbrögð áhorfenda. „Svala mín verður með á tónleikunum í ár, en hún hefur búið í Los Angeles í átta ár og það er alltaf gaman ef hún getur komið til landsins og tekið þátt. Það er gott að vinna með Svölu. Hún er mjög fagleg og kröfuhörð við sjálfa sig og það líkar mér. Ég má ekki ljóstra upp lögunum sem hún mun flytja en þau eru góð og að sjálfsögðu syngjum við saman dúett,“ segir Björgvin. Hvað stendur upp úr á þessum tíu árum?Að vanda verður gestalistinn ekki af verri endanum, en fjöldi söngvara mun stíga á svið í Höllinni á laugardaginn.Mynd/MummiLú„Allar þær góðu og frábæru minningar frá þessu mikla ævintýri. Allt þetta góða fólk sem ég hef kynnst í gegnum tónleikana. Frábærir söngvarar og hljóðfæraleikarar sem tekið hafa þátt með okkur sem ég er mjög þakklátur fyrir. Það er þetta fólk sem ég þakka þessa velgengni í gegnum árin,“ segir hann þakklátur. Val á jólastjörnunni hefur orðið æ umfangsmeira síðustu árin og er verkefnið orðið að vinsælum sjónvarpsþætti ár hvert. Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir, níu ára stúlka frá Grindavík, var valin Jólastjarnan 2016 og mun hún koma fram ásamt fjölda þekktra stórsöngvara næstu helgi. „Mér finnst Jólastjörnuþættirnir frábærir, okkur langaði alltaf að láta Jólagestatónleikana höfða til breiðari hóps og það hefur tekist vel með þessum þáttum. Það er svo skemmtilegt að vinna með þessum frábæru krökkum sem tekið hafa þátt og margir hverjir haldið áfram og gengið vel sem er frábært,“ segir Björgvin. Þetta mun verða í síðasta sinn sem Jólagestir Björgvins verða í Höllinni en talsverðar breytingar eru framundan, sem verður skemmtilegt að fylgjast með. „Ég mun halda áfram að taka á móti jólagestum eins og áður, en sjálfsagt eiga þeir eftir að breytast þar sem við stefnum á Eldborg á næsta ári. Ég mun sakna Laugardalshallarinnar, en þar hefur verið frábært að vera í öll þessi ár. Harpan er allt öðruvísi hús og býður upp á aðra spennandi möguleika sem er frábært. Við munum auðvitað reyna að toppa okkur eins og alltaf sem er ögrandi og skemmtilegt. Við munum eflaust brydda upp á nýjungum sem eiga eftir að falla tónleikagestum vel í geð. Það er næsta verkefni sem ég hlakka mikið til að vinna að,“ segir Björgvin.
Jólafréttir Jólastjarnan Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Fleiri fréttir Herbert og Patrik leika við hvern sinn fingur í nýju myndbandi Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Lætur langþráðan draum rætast og gefur út óð til grínsins Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Sterk sumarást í sveitinni kveikti áhugann á þýskunni Kenndi Kelly Clarkson að bera fram Laufey og Björk Ungstirni gefur út sitt fyrsta lag DJ goðsögn stýrði trylltum dansi „Fólkið er kjarni Þjóðhátíðar og ég vildi sýna það“ Er ósigrandi á sviði og sækir orkuna niður í jörð Nýjasta súperstjarna heimsins „Stefni út í heim og er með stóra drauma“ Scooter til landsins með risatónleika í Laugardalshöll Maðurinn sem uppgötvaði Bieber kveður bransann Öxar við ána nú til í salsaútgáfu Lofar svakalegri veislu „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið „Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Yo-Yo Ma kemur til landsins „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Sjá meira