Innlent

Maður lést um borð í Herjólfi

Atli Ísleifsson skrifar
Herjólfur.
Herjólfur. Vísir/Magnús Hlynur
Aldraður maður lést um borð í Herjólfi þegar ferjan var á leið frá Þorlákshöfn og til Vestmannaeyja í gærkvöldi. DV greindi fyrst frá málinu.

Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúa Eimskipa, segir í samtali við Vísi að ferjunni hafi verið snúið við og siglt aftur til Þorlákshafnar þar sem maðurinn var úrskurðaður látinn.

Ólafur segir að svo virðist sem að maðurinn hafi fengið fyrir hjartað og látist.

Komu ferjunnar til Vestmannaeyja seinkaði töluvert vegna atviksins í gærkvöldi.

Ekki náðist í lögregluna á Suðurlandi við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×