Innlent

Hótaði og hrækti á lögreglumann

Þorgeir Helgason skrifar
Konan hótaði að drepa tvo lögreglumenn og fjölskyldur þeirra og hrækti á þann þriðja.
Konan hótaði að drepa tvo lögreglumenn og fjölskyldur þeirra og hrækti á þann þriðja. Vísir/Hari
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær konu í 90 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Konan var ákærð fyrir að reyna að sparka í tvo lögreglumenn, hóta þeim og fjölskyldum þeirra lífláti og að hafa hrækt á þriðja lögreglumanninn.

Konan játaði skýlaust brot sitt. Henni ber að greiða 143 þúsund krónur í málskostnað og refsing hennar fellur niður haldi hún skilorð í tvö ár.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

vísir/gva



Fleiri fréttir

Sjá meira


×