Jenson Button, ökumaður McLaren liðsins spáir fyrrum liðsfélaga sínum og ríkjandi heimsmeistara Lewis Hamilton heimsmeistaratitli ökumanna í ár.
Bilið er tvö stig frá Hamilton á toppi meistaramótsins og niður að liðsfélaga Hamilton, Nico Rosberg. Hamilton og Button voru þrjú ár saman hjá McLaren.
„Ég held að Lewis verði heimsmeistari. Ítalía fór ekki eins og hann ætlaði,“ sagði Button í samtalið við Sky Sports.
„Hann hefur komið aftur eftir að hafa verið langt undir, það eru allir búnir að gleyma hversu langt hann var á eftir Rosberg. Hann lokaði bilinu í þremur keppnum,“ bætti Button við.
Hamilton var 43 stigum á eftir Rosberg þegar bilið var mest. Tímabilið hefur gengið upp og niður hjá heimsmeistaranum sem nú leiðir eins og áður sagði með tveimur stigum.
„Fyrir mér er Lewis áreiðanlegri þegar bíllinn virkar, hann kann á tímatökurnar og hann er mjög góður í keppnum líka. Andlega er hann miklu sterkari en hann var áður, hann á mjög góða möguleika á að vinna fjórða heimsmeistaratitilinn sinn og hann mun líklega gera það,“ sagði Button að lokum.
Jenson Button spáir Hamilton heimsmeistaratitlinum

Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Mercedes átti Monza
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark á Mkonza og nældi sér í 25 stig. Hann minnkaði forksot liðsfélaga síns í heimsmeistarakeppni ökumanna úr niu stigum í tvö.

Alonso: Stoffel Vandoorne mun leiða McLaren inn í framtíðina
Fernando Alonso segir að ungstirnið Stoffel Vandoorne muni leiða McLaren liðið inn í framtíðina. Alonso segir einnig að hann og Jenson Button muni gera allt til að aðstoða Belgann.

Formúlan seld á 500 milljarða króna
Eftir áralangar vangaveltur um framtíð Formúlu 1 er loksins verið að selja íþróttina til nýrra eigenda.

Formúlan þarf á einræðisherranum að halda
Þó svo verið sé að selja Formúlu 1 á 500 milljarða þá ætla nýir eigendur að halda í hinn 85 ára gamla Bernie Ecclestone.