Innlent

Var ekki í bílbelti og kastaðist úr bílnum við veltu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Níu slys urðu í umdæminu í liðinni viku.
Níu slys urðu í umdæminu í liðinni viku. Vísir
Tvö börn slösuðust í gær þegar bílaleigubifreið, sem þau voru farþegar í, fór út af veginum á Laxárdalsheiði og valt. Börnin, sem sátu í aftursætum bílsins, voru ekki í bílbelti og kastaðist annað þeirra út úr bílnum. Börnin eru tíu og tólf ára en foreldrar þeirra, erlendir ferðamenn sem sátu fram í, sluppu ómeidd.

Umrætt óhapp var eitt níu slysa sem urðu í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Fjögur slys áttu sér stað í gær.

Tvöfaldur hjólbarði losnaði undan tengivagni dráttarbíls en bíllinn var að flytja heitt malbik vestur Snæfellsnesveg. Dekkið lenti utan í fólksbíl sem kom úr gagnstæðri átt en sá endaði utan vegar. Engin meiðsl urðu á fólki.

Tveir ökumenn voru teknir grunaðir undir akstur undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir meinta ölvun við akstur. Hraðamyndavélar landsins gómuðu síðan um 700 ökumenn við að aka of hratt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×