Kristófer: Shout-out á Guðna Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöll skrifar 17. september 2016 18:43 Kristófer og Guðni fallast í faðma fyrir leik. mynd/bára dröfn kristinsdóttir
Kristófer Acox kom eins og stormsveipur inn í íslenska landsliðið í undankeppni EM 2017. Hann fékk ekki leyfi til að fara á EM í fyrra en ætlar að sjálfsögðu að vera með á næsta ári. „Það er ekkert annað í stöðunni, þetta er geðveikt. Ég er bara orðlaus,“ sagði Kristófer eftir sigurinn á Belgum í dag. Íslenska liðið var í vandræðum framan af leik og lenti mest 14 stigum undir. En strákarnir gáfust aldrei upp, unnu sig inn í leikinn og lönduðu frábærum sigri. „Í hálfleik töluðum við um að halda haus. Það var mikil spenna í mönnum til að byrja með en um leið og við fórum að spila okkur bolta sáum við að við erum jafn góðir ef ekki betri en þetta lið,“ sagði Kristófer. En hvernig hefur það verið fyrir hann að koma inn í landsliðið? „Það hefur verið mjög gott. Ég fékk smá nasaþef af þessu á Smáþjóðaleikunum en það er geðveikt að spila svona alvöru leiki í fullri höll.“ Frægt var þegar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði Kristófer á ensku fyrir leikinn gegn Sviss. Forsetinn baðst síðar afsökunar á því og fyrir leikinn í dag féllust þeir í faðma. En hvað fór þeim á milli? „Eitthvað gott, þetta var allt í góðu. Þetta er toppmaður. Shout-out á Guðna,“ sagði Kristófer að lokum.
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið Íslendingar mættu stundum hugsa sinn gang Handbolti Dómarinn neitaði að taka í hönd leikmanns eftir leik Fótbolti Víkingar geta náð því sem enginn hefur gert í sextíu ár Íslenski boltinn Kallaður hinn tyrkneski Gordon Banks eftir hetjumarkvörslu sína Fótbolti Simone Biles hoppaði upp í 3,6 metra hæð Sport Enginn vildi tala við hann en nú fær hann rúma þrjá milljarða Körfubolti Óskar Hrafn ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR Fótbolti Fylgdust með hjartslætti Ronaldo í leiknum á móti Slóveníu Fótbolti Pabbinn svekktur eftir að Klay valdi Mavericks yfir Lakers Körfubolti Gefur aðeins grænt ljós á viðræður við Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron James samdi við Lakers og spilar við hlið sonarins Höttur fær annan Dana til sín: „Vona að þið séuð ekki komin með ógeð af dönskum leikmönnum“ „Við gáfum Bronny ekkert, hann vann fyrir þessu“ „Ég kæmi ekki inn í þetta lið nema með það hugarfar að vinna báða titlana“ Pabbinn svekktur eftir að Klay valdi Mavericks yfir Lakers Enginn vildi tala við hann en nú fær hann rúma þrjá milljarða Gerir nýjan 44 milljarða risasamning við Boston Þrír Íslendingar í úrvalsliðum Norðurlandamótsins LeBron vill fá DeMar DeRozan til Lakers Umtalað samband við eldri konu talið hafa spillt fyrir NBA meistarar Boston Celtics til sölu Hilmar Smári semur við Stjörnuna Klay Thompson að semja við Dallas Mavericks LeBron James slítur samningi við Lakers og Chris Paul fer til Spurs „Aðdáendur liðsins munu kynnast mínum gríska anda og orku“ Paul George gerir fjögurra ára samning við Philadelphia 76ers Reese í sögubækurnar og Clark með enn einn stórleikinn Almar skoraði fjörutíu stig þegar Ísland varð Norðurlandameistari Faðir og sonur munu stýra syni og bróður Segir að Golden State banni Wiggins að spila á ÓL LeBron stoltur af syninum: „Arfleið!“ James feðgarnir sameinast í liði Los Angeles Lakers Álftanes fær mikla hetju úr Texas háskólanum Kínverski risinn sem enginn getur stöðvað Tveir Frakkar valdir fyrstir í nýliðavali NBA Maðurinn sem missir ekki úr mínútu skiptir um lið í stóra eplinu Basile á Krókinn Sara Rún áfram í Keflavík næstu tvö árin Lakers staðfesta ráðningu JJ Redick Besti leikmaður 1. deildarinnar til liðs við Álftanes Sjá meira