Airbus A-330 breiðþota Grænlandsflugs er að koma frá Kaupmannahöfn til lendingar á flugvellinum í Kangerlussuaq en þetta er aðaltenging Grænlendinga við umheiminn. Hann hét áður Syðri-Straumfjörður og er eini áætlunarflugvöllurinn sem er nægilega stór fyrir farþegaþotur. Hann er þó aðallega millilendingarstaður því þaðan fara flestir farþeganna áfram með smærri vélum eða þyrlum til helstu bæja Grænlands en í Kangerlussuaq er bara 500 manna þorp.
Það var Bandaríkjaher sem byggði flugvöllinn á stríðsárunum, árið 1941, og þar var bandarísk herstöð allt til ársins 1992. Þótt hann hafi á sínum tíma hentað sem herflugvöllur var staðsetning hans ekki hugsuð út frá grænlensku samfélagi. Það sama gildir um flugvöllinn í Narsarssuaq, sem einnig var byggður af Bandaríkjaher, en liggur fjarri helstu bæjum Suður-Grænlands.

Flugfélag Íslands flýgur til fimm staða á Grænlandi og þar fylgjast menn grannt með þróun mála. Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri segir þessar hugmyndir geta breytt landslagi verulega í samgöngum Grænlands.
„Í því liggja jafnvel mun meiri tækifæri fyrir okkur heldur en hingað til,“ segir Árni.

„Þetta er tiltölulega langt flug á litlum vélum, sem við höfum verið að bjóða upp á hingað til. En með þessum stækkunum á flugbrautum er hægt að fljúga stærri flugvélum inn. Þannig að möguleikarnir skapast í því að vera með stærri einingar, þá getur sætiskostnaðurinn lækkað," segir Árni.