Innlent

Sigurður Einarsson sakar Bjarna um tvískinnung

Jakob Bjarnar skrifar
Sigurður gagnrýnir Bjarna harðlega: „Það lítur því út fyrir að yfirlýsing Bjarna um eigið innrætti og gagnrýni gagnvart þeim sem „hafa sífellt tilhneigingu til að horfa til baka í þeim tilgangi að rannsaka og ákæra“ gildi einungis gagnvart stjórnkerfinu og embættismönnum landsins
Sigurður gagnrýnir Bjarna harðlega: „Það lítur því út fyrir að yfirlýsing Bjarna um eigið innrætti og gagnrýni gagnvart þeim sem „hafa sífellt tilhneigingu til að horfa til baka í þeim tilgangi að rannsaka og ákæra“ gildi einungis gagnvart stjórnkerfinu og embættismönnum landsins
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, birti nú rétt í þessu pistil á Facebooksíðu sinni þar sem hann sækir hart að Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Sigurður sakar Bjarna um tvískinnung.

Rannsókn sem mun engu skila

„Bjarna finnst tilgangslaust að rannsaka hvort seðlabankastjóri hafi gert mistök þegar veðin í FIH bankanum voru seld árið 2012 (aðila sem Bjarni segir sjálfur að hafi stórgrætt á viðskiptunum við Seðlabankann sem tapaði milljörðum á rangri tímasetningu viðskiptanna),“ skrifar Sigurður. En bendir jafnframt á að Bjarni vilji hvetja til rannsóknar á einkavæðingu Búnaðarbankans fyrir tæpum fjórtán árum.

„Kostnaðarsöm rannsókn sem mun aldrei skila neinum niðurstöðum, hvað þá ákærum. Rannsókn á ferli sem augljóslega braut hvergi gagnvart neinum lögum, alveg sama með hvaða hætti aðkomu þýska einkabankans Hauck & Aufhäuser var að kaupunum á Búnaðarbankanum í byrjun árs 2003.“

Umræða um Geir H. Haarde á villigötum

Sigurður vitnar í viðtal við Bjarna í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 27. október þar sem hann er spurður út í sölu Seðlabankans á bréfum í FIH bankanum í Danmörku, sem tekin voru að veði fyrir neyðarláni til Kaupþings skömmu fyrir hrun í október 2008.

„Það er alltaf svo auðvelt að horfa til baka, eins og þetta fólk sem dró Geir H Haarde fyrir Landsdóm gerði, við hefðum gert þetta öðruvísi og þetta varðar við lög og þarf að rannsaka og ákæra. Ég er ekki þannig innrættur að ætla setja mig í spor þeirra sem þetta höndluðu mér finnst hinsvegar nauðsynlegt að þetta sé upp á borðum. Mér finnst umræðan um það sem gerðist þennan dag þegar lánið er veitt vera víða á miklum villigötum og sérstaklega það að það eigi eftir að skoða einhverja hluti. Gögnin sem voru þarna í þættinum um daginn þau komu frá Sérstökum saksóknara það er búið að skoða þetta ofan í sauma og það er ekkert í þessu sem þarfnast frekari skoðunar,“ sagði Bjarni á Bylgjunni.

Tvískinnungur Bjarna

Þetta þykir Sigurði skjóta skökku við.

„Í maí lagði umboðsmaður Alþingis til við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að skipuð yrði nefnd til þess að rannsaka einkavæðingu Búnaðarbankans í byrjun árs 2003. Í fréttum RÚV 25. maí s.l. sagði Bjarni að hann vildi rannsaka aðkomu þýska einkabankans Hauck & Aufhäuser að kaupum S-hópsins á Búnaðarbankanum í byrjun árs 2003 og telur að um það sé einhugur á þingi,“ skrifar Sigurður.

Og hann bætir þessu við: „Það lítur því út fyrir að yfirlýsing Bjarna um eigið innrætti og gagnrýni gagnvart þeim sem „hafa sífellt tilhneigingu til að horfa til baka í þeim tilgangi að rannsaka og ákæra“ gildi einungis gagnvart stjórnkerfinu og embættismönnum landsins en hann hafi ekki sama umburðarlyndi gagnvart hugsanlegum mistökum þegar kemur að samfélaginu sem slíku.“


Tengdar fréttir

Neyðarlánið til Kaupþings aldrei verið rannsakað sem umboðssvik

Neyðarlán Seðlabankans til Kaupþings hinn 6. október 2008 hefur aldrei verið til rannsóknar hjá saksóknara. Meint umboðssvik ná til embættismanna en Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir engan hafa fengið stöðu sakbornings við rannsókn á láninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×