Lífið

1500 manns hafa deilt fyrir mömmu sína

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott átak.
Flott átak.
Árlega söfnunarátakið Bleika slaufan er farið af stað og í ár rennur allur ágóði af sölu slaufunnar til tækjakaupa fyrir brjóstakrabbameinsleit.

Í auglýsingu sem fyrirtækið Brandenburg vann fyrir Krabbameinsfélagið má sjá krúttlegar uppákomur sem flestar mömmur ættu að geta fundið sig í og hefur hún vakið mikla athygli en um 1500 manns hafa nú þegar deilt henni af Facebook síðu Bleiku slaufunnar.

Eins hafa fjölmargir Facebook notendur sett forsíðumynd inn til að heiðra mömmu sína og vekja athygli á málefninu. Auglýsinguna fyrir mömmur okkar allra má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×