Ganga úr úr myrkri í ljós: „Erum afskaplega þakklát Íslendingum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2016 18:30 Flott átak. vísir
Ákveðið hefur verið að halda fyrstu „Darkness into Light“ göngu Pieta á Íslandi aðfaranótt 7. maí næstkomandi, en þar verður gengin fimm kílómetra leið úr næturmyrkri inn í dagrenningu, úr myrkri í ljós, til fjáröflunar hjálparmiðstöðvar sjálfsvíga og sjálfsskaða. Einnig verður gengið til að minnast þeirra sem hafa farið úr sjálfsvígi og fyrir þá sem hafa öðlast von. Pieta House var stofnað á Írlandi fyrir áratug af Joan Freeman, í kjölfar þess að systir hennar féll fyrir eigin hendi. Úrræðaleysi heilbrigðiskerfisins var hvatning til stofnunar samtakanna og er tilgangur þeirra að gefa von, hvetja til vitundarvakningar um sjálfsvíg og sjálfsskaða, standa fyrir fræðslu og rannsóknum og útvega sálfræðiaðstoð svo eitthvað sé nefnt. Pieta Ísland hefur nú verið stofnað og stendur fyrir göngunni, sem gengin er á sama tíma í nokkrum löndum og er reiknað með að yfir 120.000 manns gangi úr myrkri inn í birtu á sama tíma.„Við erum afskaplega þakklát Íslendingum fyrir stuðninginn,“ segir Joan Freeman, stofnandi Pieta House á Írlandi.„Kjarkur ykkar, framsýni og örlæti hafa hjálpað mörgum í Reykjavík og leitt til þess að fyrsta „Darkness into Light“ gangan verður farin á Íslandi."Eins og áður sagði verður gengið í Reykjavík aðfaranótt 7. maí og hefst gangan kl. 04:00 við húsnæði KFUM og KFUK við Holtaveg í Laugardal. Gangan er liður í að halda umræðunni um sjálfsvíg opinni í þeim tilgangi að draga úr þeim og gefa von. Pieta Ísland hyggst stofna hjálparmiðstöð fyrir sjálfsvíg og sjálfsskaða sem þátttakendum gefst tækifæri til að styrkja. Þátttökugjald í „Darkness into Light“ - Úr myrkrinu í ljósið er 3.500 kr. Hægt er að skrá sig í gönguna og fá nánari upplýsingar á vefsíðunni og á Facebook-síðunni
Mest lesið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Bíó og sjónvarp Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Lífið Sigmundur birtist fyrirvaralaust Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Fleiri fréttir Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Draumkennt brúðkaup á Sardiníu Sjá meira