Bíó og sjónvarp

Jón Viðar alls ekki hrifinn af Ófærð

Bjarki Ármannsson skrifar
„Ég hef nú lagt á mig að horfa á heila fjóra þætti af þessu torfi,“ skrifar Jón Viðar Jónsson, einn þekktasti leiklistargagnrýnandi landsins, á Facebook-síðu sína í kvöld um sjónvarpsþættina Ófærð.
„Ég hef nú lagt á mig að horfa á heila fjóra þætti af þessu torfi,“ skrifar Jón Viðar Jónsson, einn þekktasti leiklistargagnrýnandi landsins, á Facebook-síðu sína í kvöld um sjónvarpsþættina Ófærð. Vísir
„Ég hef nú lagt á mig að horfa á heila fjóra þætti af þessu torfi,“ skrifar Jón Viðar Jónsson, einn þekktasti leiklistargagnrýnandi landsins, á Facebook-síðu sína í kvöld um sjónvarpsþættina Ófærð. „Ef þessi þyngslagangur með öllum sínum undarlegu útúrdúrum (nú síðast snjóflóði framkölluðu af hálfæru gamalmenni) væri búinn til af einhverri annarri þjóð, en minni eigin ástkæru, hefði ég hætt eftir annan þátt.“

Ófærð er dýrasta sjónvarpsþáttaröð Íslandssögunnar og skartar einvalaliði íslenskra leikara sem Baltasar Kormákur leikstýrir. Þættirnir hafa verið sýndir á RÚV undanfarnar fjórar vikur og vakið umtal, en skiptar skoðanir eru um þá.

Sjá einnig: Blaðamaður Moggans heggur í Ófærð

Jón Viðar fellur bersýnilega í hóp þeirra sem þykir ekki mikið til þáttanna koma en hann birtir í kvöld umsögn um nýjasta þáttinn. Hann segir saga þáttanna ekki ná sér, persónusköpun sé mjög fátækleg og samtöl líflaus.

„Nú síðast sýndist þetta helst ætla að snúast í einhvers konar smábæjarkómedíu með Pálma Gestssyni fremstum í flokki sem einhvers konar samblandi af mafíósa og Bastían bæjarfógeta,“ skrifar Jón meðal annars um þáttinn. „Hjörturinn dulúðugi virðist laus allra mála eftir tilfinningaþrungna sáttastund með pabbanum, reiða og raunamædda, og Danirnir eru sennilega „bara“ sekir um þátttöku í mansali.“

Sjá einnig: „Gæti verið CSI-Seyðisfjörður“

Gagnrýnandinn segir vini og félaga á Facebook hafa tjáð honum að þeim finnist hann ekki sýna þáttaröðinni nægt „umburðarlyndi“ í skrifum sínum um þáttinn. Hann segist þó frekar eiga skilið lof en last fyrir að hafa haldið svona lengi út.

„Ég samgleðst vitaskuld öllum sem una sér vel við þetta skemmtiefni, en bið þá í fullri vinsemd um að sýna MÉR umburðarlyndi og skilning,“ skrifar hann. „Og minni að lokum á að útvarpsstjórinn glaðbeitti Magnús Geir Þórðarson hefur talað um þetta sem „stórvirki í íslensku menningarlífi.“ Svo ég tel mig hafa fullan borgaralegan rétt til að vera fúll og velja mér vandaðri afþreyingu.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.