Enski boltinn

Búið að kæra Drinkwater

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Drinkwater í leiknum gegn Watford.
Drinkwater í leiknum gegn Watford. vísir/getty
Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur kært Danny Drinkwater, leikmann Leicester City, fyrir ofbeldisfulla hegðun.

Í leik Leicester og Watford lenti Drinkwater saman við Valon Behrami, leikmann Watford, sem endaði með því að Drinkwater gaf Behrami olnbogaskot.

Dómarar leiksins misstu af atvikinu en það náðist á sjónvarpsmyndavélum og því er Drinkwater kærður.

Ef Drinkwater verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér sekt og leikbann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×