Innlent

Maðurinn fundinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ólafur Örn Arnarson.
Ólafur Örn Arnarson. mynd/lögreglan
Ólafur Örn Arnarson, 34 ára karlmaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir undir kvöld í gær, er fundinn. Hann er heill á húfi, að því er segir í skeyti frá lögreglu, en ekki kemur fram hvar hann fannst né af hverju hans var saknað.

Lýst var eftir manninum eftir að hann fór frá heimili sínu í efri byggð Kópavogs snemma í gærmorgun og ekkert hafði spurst til hans. Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar að honum.  Lögregla þakkar veitta aðstoð, í skeyti sínu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×