Handbolti

FH vann öruggan sigur á ÍBV | Jóhann Birgir með stórleik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhann Birgir var frábær fyrir FH.
Jóhann Birgir var frábær fyrir FH.
FH vann frábæran sigur, 36-30, á ÍBV í Olís-deild karla í handknattleik í dag. Leikurinn fór fram í Kaplakrika og var staðan 15-15 í hálfleik.

Jóhann Birgir Ingvarsson var stórkostlegur í liði FH og skoraði hann 10 mörk. Einar Rafn Eiðsson var með átta fyrir FH.

Sigurbergur Sveinsson var einnig frábær í liðið ÍBV og skoraði hann 10 mörk. Theódór Sigurbjörnsson gerði sjö í liði Eyjamanna.

FH er með fimm stig eftir fjórar umferðir og það sama má segja um ÍBV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×