Tvisvar tilkynnt um nakta eða fáklædda menn á gangi utandyra á Akranesi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. nóvember 2016 15:18 Nokkuð kalt var á Akranesi þegar tilkynnt var um ferðir mannanna. Vísir/GVA
Í liðinni viku var í tvígang tilkynnt til lögreglu um nakta eða fáklædda menn á gangi utandyra á Akranesi. Annar mannanna fannst á röltinu og var honum komið til aðstoðar en hinn maðurinn er ófundinn. Hann var reyndar bara ber að ofan að því er segir í tilkynningu lögreglunna á Vesturlandi en hitastigið var með lægra móti þegar tilkynnt var um ferðir mannanna og nokkur næðingur að norðan. Sjö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi en flest voru þau minniháttar og vegna vetrarfærðar. Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki en í tilkynningu lögreglu segir um tvö þessara óhappa: „Síðastliðinn fimmtudag var fólksbíl ekið inn í skafl sem var á Vesturlandsvegi við Beitistaði og missti ökumaðurinn bílinn útaf og hafnaði hann á hvolfi utan vegar. Fimm voru í bílnum og sakaði þá ekki enda allir í bílbeltunum. Þeim var hins vegar orðið nokkuð kalt og fengu þeir að setjast inn í snjóruðningstæki sem kom á staðinn, á meðan beðið var eftir lögreglunni sem að kom þeim síðan til byggða. Þá rann jeppi erlendra ferðamanna útaf í hálku og valt á Skógarströnd sl. mánudag. Klakaklammi var á veginum og bíllinn var á ónegldum snjódekkjum. Fólkið slapp án teljandi meiðsla en það var í öryggisbeltum og líknarbelgir bílsins sprungu út þeim til varnar.“ Tilkynningu lögreglunnar í heild má sjá hér að neðan.
Mest lesið Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Innlent Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Innlent Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Innlent Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Innlent Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest Innlent Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Innlent „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Innlent Of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram Innlent Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu Erlent Ríkisstjórnin á hengiflugi Innlent Fleiri fréttir Áður farið af sporinu sem dragi alltaf dilk á eftir sér Óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar og milljarðasamningur í Kína Fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands látinn Engin ummerki um ísbirni Útkall vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu Of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Vatnsleki í Skeifunni Nýtt björgunarskip Landsbjargar formlega afhent „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Tvö kvenfélög taka á móti karlmönnum Bein útsending: Ávarp Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi Staðan á ríkisstjórninni og félagsmálaráðherra svarar fyrir símtalið Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest Lokaleit að ísbjörnum með dróna Ríkisstjórnin á hengiflugi Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Netverjar keppast við að tjá sig um fundinn Talið að snjór hafi villt um fyrir ferðamönnum Kornbændur á Suðurlandi bera sig vel Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni „Meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu“ Hver er framtíð ríkisstjórnarinnar? Allir tónlistarkennararnir til í verkfall Sjá meira