Bítlasonurinn sækir um skilnað frá Sólveigu Kára Stefán Árni Pálsson skrifar 22. nóvember 2016 11:35 Parið kynntist árið 2007.
Dhani Harrison, sonur George Harrison, hefur sótt um skilnað frá fatahönnuðinum Sólveigu Káradóttur. Þetta kemur fram í frétt TMZ. Parið gekk í það heilaga árið 2012 en þau kynntust árið 2007 þegar Harrisson og Sólveig störfuðu saman. Harrison mun hafa sótt um skilnað í síðustu viku, en fram kemur í frétt TMZ að þau hafi verið með kaupmála svo að skilnaðurinn ætti að ganga smurt fyrir sig. Lögmaður Harrison er Laura Wasser, sem er einnig lögmaður leikkonunnar Angelina Jolie, en Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt fyrir ekki svo löngu. Sjá einnig: Lögfræðingurinn Laura Wasser er leynivopn Angelinu Jolie Brúðkaup Dhani og Sólveigar var hið glæsilegasta og fór það fram í Bretlandi í maí árið 2012. Sólveig var þá í brúðarkjól eftir fatahönnuðinn Stellu McCartney og var fjallað um brúðkaupið í Vouge á sínum tíma. Harrison og Sólveig hafa verið búsett í Los Angeles. Sólveig er fyrrum fyrirsæta og menntaður sálfræðingur frá Háskólanum í Boston en Harrison er tónlistarmaður og meðlimur sveitarinnar Thenewno2. Sólveig hefur undanfarin ár starfað við fatahönnun.
Tengdar fréttir Sólveig Káradóttir: Mætti með bítlasoninn Dhani til Yoko „Ég vil ekkert tjá mig um þetta og ætli ég haldi mig ekki bara við aðstoðarmanna-söguna,“ segir fyrirsætan og sálfræðineminn Sólveig Káradóttir. Sólveig, sem er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deCODE, hefur þráfaldlega verið orðuð við Dhani Harrison, son Bítilsins George Harrison og Oliviu Harrison. Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi þegar þau mættu saman í móttöku borgarstjóra Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eftir að hafa fylgst með ekkju Johns Lennon, Yoko Ono, kveikja á Friðarsúlunni úti í Viðey. 11. október 2007 07:30 Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Kára Fatahönnuðurinn Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Káradóttur en hún gengur að eiga tónlistarmanninn Dhani Harrison í næstu viku. Harrison er sonur Bítilsins sáluga George Harrison en parið hefur verið saman í nokkur ár og býr saman í Los Angeles. 23. maí 2012 11:00 Bítlasonur í Glamourpartý Sonur George Harrison kíkti á íslenska Glamour 28. mars 2015 11:00 Líkir Sólveigu við Pattie Boyd The Daily Mail líkir Sólveigu Káradóttur við fyrrum eiginkonu George Harrison. 9. febrúar 2013 15:00 Sonur Bítils aðstoðarmaður Sólveigar Kára Fyrirsætan Sólveig Káradóttir, dóttir Kára Stefánssonar forstjóra íslenskrar erfðagreiningar, er um þessar mundir stödd hér á landi ásamt Dhani nokkrum Harrison sem er enginn annar en sonur Bítilsins sáluga, Georges Harrison. 10. september 2007 14:02 Synir Bítlanna leggja drög að hljómsveit Sonur Paul McCartney opinberaði í dag að Bítlarnir muni brátt snúa aftur. Hann hefur í hyggju að stofna hljómsveit með sonum John Lennons og George Harrison. Hann vonast til að hljómsveitin eigi eftir að höfða til nýrrar kynslóðar. 3. apríl 2012 22:00 Bítlabrúðkaup í Vogue Bítlabrúðkaup í Vogue 28. ágúst 2012 00:01 Framtíðin í tísku hjá Sólveigu Sólveig Káradóttir, fyrirsæta og sálfræðingur, segir í viðtali við vefsíðuna Shopghost.com að hana langi til að reyna fyrir sér í tískubransanum í framtíðinni. Viðtalið er tekið að því tilefni að Sólveig giftist syni bítilsins George Harrison, Dhani Harrison, í byrjun júní. Þá segir Sólveig að hún hafi haft taugar til tískuheimsins síðan hún vann í versluninni 17 þegar hún var unglingur. Einnig uppljóstar Sólveig að um leið og hún sé snúin aftur frá brúðakaupsferðalaginu sínu ætli hún að einbeita sér að nokkrum spennandi verkefnum tengdum tísku en vill ekki fara nánar út í þá sálma. 1. ágúst 2012 17:00 Mest lesið Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Fleiri fréttir Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Sjá meira
Sólveig Káradóttir: Mætti með bítlasoninn Dhani til Yoko „Ég vil ekkert tjá mig um þetta og ætli ég haldi mig ekki bara við aðstoðarmanna-söguna,“ segir fyrirsætan og sálfræðineminn Sólveig Káradóttir. Sólveig, sem er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deCODE, hefur þráfaldlega verið orðuð við Dhani Harrison, son Bítilsins George Harrison og Oliviu Harrison. Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi þegar þau mættu saman í móttöku borgarstjóra Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eftir að hafa fylgst með ekkju Johns Lennon, Yoko Ono, kveikja á Friðarsúlunni úti í Viðey. 11. október 2007 07:30
Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Kára Fatahönnuðurinn Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Káradóttur en hún gengur að eiga tónlistarmanninn Dhani Harrison í næstu viku. Harrison er sonur Bítilsins sáluga George Harrison en parið hefur verið saman í nokkur ár og býr saman í Los Angeles. 23. maí 2012 11:00
Líkir Sólveigu við Pattie Boyd The Daily Mail líkir Sólveigu Káradóttur við fyrrum eiginkonu George Harrison. 9. febrúar 2013 15:00
Sonur Bítils aðstoðarmaður Sólveigar Kára Fyrirsætan Sólveig Káradóttir, dóttir Kára Stefánssonar forstjóra íslenskrar erfðagreiningar, er um þessar mundir stödd hér á landi ásamt Dhani nokkrum Harrison sem er enginn annar en sonur Bítilsins sáluga, Georges Harrison. 10. september 2007 14:02
Synir Bítlanna leggja drög að hljómsveit Sonur Paul McCartney opinberaði í dag að Bítlarnir muni brátt snúa aftur. Hann hefur í hyggju að stofna hljómsveit með sonum John Lennons og George Harrison. Hann vonast til að hljómsveitin eigi eftir að höfða til nýrrar kynslóðar. 3. apríl 2012 22:00
Framtíðin í tísku hjá Sólveigu Sólveig Káradóttir, fyrirsæta og sálfræðingur, segir í viðtali við vefsíðuna Shopghost.com að hana langi til að reyna fyrir sér í tískubransanum í framtíðinni. Viðtalið er tekið að því tilefni að Sólveig giftist syni bítilsins George Harrison, Dhani Harrison, í byrjun júní. Þá segir Sólveig að hún hafi haft taugar til tískuheimsins síðan hún vann í versluninni 17 þegar hún var unglingur. Einnig uppljóstar Sólveig að um leið og hún sé snúin aftur frá brúðakaupsferðalaginu sínu ætli hún að einbeita sér að nokkrum spennandi verkefnum tengdum tísku en vill ekki fara nánar út í þá sálma. 1. ágúst 2012 17:00