Landsbankinn er í níunda sæti í heiminum yfir þá banka sem voru virkastir við að beina viðskiptavinum á aflandsreikninga. Stofnandi Creditinfo sem var viðskiptavinur Landsbankans í Lúxemborg segir að hann hafi ekki áttað sig á því fyrr en áratug síðar að hann ætti félag á Tortóla sem Landsbankinn keypti fyrir hann.
Í gögnum frá lögmannsstofunni Mossack Fonseca sem Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna hafa undir höndum hafa fundist um 800 aflandsfélög sem tengjast 600 Íslendingum.
Í níunda sæti í heimi yfir flest aflandsfélög
Landsbankinn í Lúxemborg er í níunda sæti í heiminum yfir þá banka sem höfðu milligöngu um stofnun flestra aflandsfélaga fyrir viðskiptavini sína en bankinn kom að stofnun 404 slíkra félaga fyrir viðskiptavini samkvæmt samantekt Wall Street Journal. Það eru nær eingöngu alþjóðlegir stórbankar fyrir ofan Landsbankann á þessum lista.
Reynir Grétarsson stofnandi og forstjóri Creditinfo Group er á meðal þeirra sem voru í viðskiptum við Landsbankann í Lúxemborg árið 2006 og áttaði sig ekki á því fyrr en áratug síðar að hann hefði verið skráður fyrir aflandsfélagi á Tortóla. Hann vissi af tilvist félagsins en ekki að skráningu þess hefði verið hagað með þessum hætti enda taldi hann að félagið væri skráð í Lúxemborg. Þess skal getið að félagið hefur nú verið lagt niður.
„Ég var reyndar bara einu sinni í viðskiptum við þennan banka og það var vegna níu milljóna króna fjárfestingu í nokkra mánuði á árinu 2006. Bankinn vildi halda utan um þetta í einhvers konar félagi, væntanlega til að geta tekið til sín verkefnið ef illa gengi. Svo hætti ég í þessu verkefni nokkrum mánuðum síðar á sama ári. Svo þegar þessi umræða kom upp núna þá fór ég að skoða þetta félag. Þá sé ég að þetta er skráð á Tortóla á Bresku-Jómfrúreyjum,“ segir Reynir. Hann segist hafa gefið sér að um væri að ræða félag í Lúxemborg enda kom ekkert fram um Jómfrúreyjar á neinum skjölum.
Í sömu stöðu og Bjarni Ben
Reynir er því í sömu stöðu og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sem hefur sagt að hann hafi ekki vitað að félagið Falson & Co., sem Landsbankinn í Lúxemborg stofnaði fyrir viðskiptafélaga hans um kaup á fasteign í Dubai, hafi verið skráð á Seychelles-eyjum.
„Ég allavega trúi því sem Bjarni segir um að hann hafi ekki áttað sig á þessu. Ég er lögfræðingur eins og hann og þokkalega upplýstur um fyrirtækjarekstur. Það hvarflaði ekkert að manni að fara að skoða hvað bankinn væri að gera í þessu,“ segir Reynir. Hann segist telja að mjög margir fyrrverandi viðskiptavinir Landsbankans í Lúxemborg séu í sömu sporum.
Reynir vissi ekki að hann ætti félag á Tortóla
Þorbjörn Þórðarson skrifar
Mest lesið

Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið
Viðskipti innlent

Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu
Viðskipti innlent

Bjartara yfir við opnun markaða
Viðskipti erlent


Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna
Viðskipti innlent

Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn
Viðskipti erlent

Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Hækkanir í Kauphöllinni á ný
Viðskipti innlent

Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag
Viðskipti innlent