Enski boltinn

Southgate fær fastráðningu í dag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Southgate mun væntanlega brosa alla leið í bankann.
Southgate mun væntanlega brosa alla leið í bankann. vísir/getty
Samkvæmt heimildum Sky Sports þá mun enska knattspyrnusambandið veita Gareth Southgate fastráðningu sem landsliðsþjálfari í dag.

Southgate hefur verið bráðabirgðalandsliðsþjálfari í síðustu fjórum landsleikjum. Staða sem hann tók er Sam Allardyce hrökklaðist óvænt úr starfi.

Enska landsliðið hefur ekki tapað í þessum fjórum leikjum undir stjórn Southgate og enska sambandið er ánægt með hans störf.

Heimildir Sky herma einnig að Southgate hafi viljað ríflega launahækkun og samning fram yfir EM 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×