Bíó og sjónvarp

Misheppnaðir endurfundir ER

Samúel Karl Ólason skrifar
Laurie og Clooney virða fyrir sér hræðilega hluti sem þykjustunni læknar.
Laurie og Clooney virða fyrir sér hræðilega hluti sem þykjustunni læknar.
George Clooney og Jimmy Kimmel reyndu að stofna til endurfunda leikara hinna geysivinsælu læknaþátta ER, betur þekkir sem Bráðavaktin á íslensku. Það heppnaðist þó ekki vel þar sem enginn annar en Clooney lét sjá sig.

Meðal þeirra sem gátu ekki komið voru Julianna Margulies, sem er upptekin við að leika í The Good WifeNoah Wyle komst ekki heldur þar sem hann þurfti að fá sér taco með fjölskyldu sinni, sem er hefð á þriðjudögum. Eriq La Salle var upptekinn við kviðdómaskyldu.

Sá eini komst var þó Hugh Laurie, sem lék Dr. House í samnefndum þáttum.

Það má segja að niðurstaðan sé nokkuð óhefðbundinn en fyndinn læknaþáttur eins og sjá má að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.