Lífið

Húkkaði sér far til San Francisco

Samúel Karl Ólason skrifar
Martin og Corden í góðum gír.
Martin og Corden í góðum gír.
Þáttastjórnandinn James Corden fer reglulega á rúntinn með tónlistarfólki. Í gær var Corden þó í fríi þegar hann rak augun í Chris Martin söngvara Coldplay, þar sem hann var að reyna að húkka sér far til San Francisco.

Þeir Corden og Martin virðast hafa skemmt sér vel á ferðalaginu, ef marka má meðfylgjandi myndband sem birt var í gær.

Meðal þess sem þeir gerðu var að spila lagið Heroes eftir David Bowie, kaupa sér límonaði, sofa í sama rúmi á móteli og margt fleira.

Þessi dagskráliður heitir Carpool Karaoke og hefur notið mikilla vinsælda. Coldplay mun spila í hálfleik á Superbowl sem fer fram í San Francisco á sunnudaginn.


Tengdar fréttir

Bieber og Corden klæddu hvorn annan upp - Myndband

James Corden og Justin Bieber fóru aftur á rúntinn um Los Angeles á dögunum en þetta er í annað sinn sem Íslandsvinurinn skellir sér í bíltúr með þessum breska þáttastjórnanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.