Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Star Trek Beyond

Samúel Karl Ólason skrifar
Ný stikla fyrir myndina Star Trek Beyond hefur verið gefin út. Hún sýnir James Kirk og áhöfn Enterprise lenda í ansi miklum vandræðum en hún verður frumsýnd þann 22. júní næstkomandi.

Sé eitthvað að marka athugasemdakerfi og umfjöllun erlendra miðla, eru almenningur og sérstaklega aðdáendur Star Trek töluvert ánægðari með þessa stiklu en þá fyrstu.

Star Trek Beyond er leikstýrt af Justin Lin sem er hvað þekktastur fyrir að leikstýra nokkrum Fast & Furious myndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.