Fótbolti

Eder hetja Ítala gegn Svíum | Sjáðu markið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eder fagnar marki sínu í dag.
Eder fagnar marki sínu í dag. vísir/afp
Framherjinn Eder skaut Ítölum í dag áfram í 16-liða úrslit EM með glæsilegu marki undir lok leiksins.

Það stefndi allt í steindautt jafntefli er Eder tók sænsku vörnina á og nelgdi boltanum síðan í netið.

Fram að þessu marki hafði lítið sem ekkert verið að gerast í leiknum.

Ítalía er með fullt hús í E-riðli eftir sigur á Belgum og Svíum.

Svíar aftur á móti með aðeins eitt stig eftir tvo leiki og þeir munu þurfa sigur gegn Belgum í lokaumferðinni til þess að eygja von um að komast áfram í 16-liða úrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×