Tónlist

Mikill uppgangur í pönkinu

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Hér má sjá nokkra meðlimi úr sveitunum sem spila í Lucky Records í dag.
Hér má sjá nokkra meðlimi úr sveitunum sem spila í Lucky Records í dag. Fréttablaðiði/Eyþór
"Pönksenan er mjög virk núna og mikið að gerast,“ segir Júlía Aradóttir sem stendur fyrir tónleikum í Lucky Records í kvöld ásamt Þóri, eiginmanni sínum. Fram koma pönksveitirnar Dauðyflin, Roht, Kvöl og Antimony. „Ég er ásamt nokkrum öðrum í hóp sem við köllum Paradísarborgarplötur eða Pbp. Við erum dugleg að halda tónleika, spila í hljómsveitum og gefa út plötur.“

Júlía segir mikinn uppgang vera í pönksenunni um þessar mundir og mikið af konum sé í pönkinu. „Pönksenan hefur gengið í gegnum ýmislegt undanfarin ár en þetta er stórt núna. Það eru margir virkir og flottir einstaklingar að halda utan um þetta. Það eru margir að halda tónleika og gera ýmislegt. Það er líka skemmtilegt að á þessum tónleikum sem við erum með í kvöld þá koma fram fimm konur og fjórir karlar. Það er mikið af konum í pönkinu. Örugglega meira en í mörgum öðrum tónlistarsenum.“

Júlía segir að Lucky Records sé í miklu uppáhaldi sem tónleikastaður. „Okkur finnst frábært að spila þarna. Það eru ekki margir staðir þar sem allir aldurshópar geta komið og það er aðgengi fyrir alla. Það skiptir okkur miklu máli.“

Þetta eru ekki einu tónleikarnir í Lucky Records í dag því hljómsveitin Sveimur heldur tónleika þar klukkan 16. Pönktónleikarnir hefjast klukkan 20 og það er ókeypis á báða tónleikana.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.