Bíó og sjónvarp

Stuttmynd Uglu Hauks verðlaunuð

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Ugla Hauks er bæði ljósmyndari og nú útskrifaður leikstjóri.
Ugla Hauks er bæði ljósmyndari og nú útskrifaður leikstjóri. Vísir
Ugla Hauksdóttir leikstjóri hlaut hin virtu Student Select Awards og IFP Audience Awards við útskriftarhátíð sína við Columbia University í New York á miðvikudag.

Þar með lauk hún meistaranámi í faginu en Ugla hefur áður getið af sér gott orð sem handritshöfundur stuttmyndarinnar Milk and Blood sem sýnd var á Slamdance kvikmyndahátíðinni árið 2014.

Johanna Day fer með aðalhlutverkið í stuttmyndinni How far she went.Vísir
Efnilegur leikstjóri

Nýju myndina How Far She Went vann hún með handritshöfundinum og kvikmyndaframleiðandanum Chloe Lenihan. Myndin er 13 mínútur að lengd og er gerð eftir smásögu Flannery O‘Connor um tregafullt samband ömmu og barnabarns hennar.

Þrátt fyrir ungan aldur á Ugla fjölda stuttmynda að baki en þar má helst nefna myndina Salt frá 2014 sem tilnefnd var til ferna verðlauna á kvikmyndahátíðum á Íslandi og í Bandaríkjunum. Árið 2014 hlaut hún David Jones minningarstyrkinn þar sem hún þótti efnilegasti leikstjóri skólans.

Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem Ugla og framleiðandinn tala um gerð nýju myndarinnar.


Tengdar fréttir

Ástarsaga, íslensk stuttmynd, gerir það gott

Ása Hjörleifsdóttir útskrifaðist úr kvikmyndagerðardeild Columbia-háskóla í New York á síðasta ári. Lokaverkefni hennar úr skólanum, stuttmyndin Ástarsaga, hefur hvarvetna hlotið góðar viðtökur en myndin var tekin upp bæði í New York og Íslandi.

Íslensk stuttmynd á virta bandaríska kvikmyndahátíð

Ugla Hauksdóttir framleiddi og skrifaði handritið að stuttmyndinni Milk and Blood sem komst fyrir skömmu inn á hina virtu bandarísku kvikmyndahátíð Slamdance. Ugla vonast til að kynnast fleira fólki í bransanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.