Jarðskjálfti að stærð 4,4 mældist í norðaustanverðri brún Bárðarbunguöskjunnar klukkan 7:11 í morgun. Skjálftinn er sá stærsti sem mælst hefur frá goslokum í febrúar 2015.
Um 20 eftirskjálftar komu í kjölfar skjálftans, einn þeirra var af stærð 3,3. Það dró verulega úr skjálftavirkni eftir klukkan 07:45.
Veðurstofan fylgist grannt með áframhaldandi þróun mála allan sólarhringinn.
