Má Steph Curry hreinlega taka svona áhættu? | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. maí 2016 13:00
Stuðningsmenn Golden State Warriors fengu örugglega smá áfall í öðrum leik Golden State Warriors og Oklahoma City Thunder þegar besti leikmaður NBA-deildarinnar tók kannski aðeins of mikla áhættu í baráttu um boltann. Atvikið sem fékk stuðningsfólk NBA-meistaranna til að taka andköf gerðist þegar aðeins níu mínútur voru liðnar af leiknum. Stephen Curry stakk sér þá til sunds inn í miðjan áhorfendaskarann og skall í gólfið fyrir aftan fyrstu röðina. Steph Curry hefur verið að glíma við meiðsli í úrslitakeppninni og hefur misst af sex leikjum vegna bæði ökkla- (2 leikir) og hnémeiðsla (4 leikir). Hann er ekki enn orðin alveg hundrað prósent og þá er ekki sniðugt að vera fórna skrokknum eins og hann gerði í þessu tilfelli. Steph Curry var þarna kominn með níu stig í leiknum en öll þeirra komu rétt áður og Curry leit út fyrir að vera að komast í gang. Þeir svartsýnustu óttuðust jafnvel að Curry væri aftur meiddur enda leið svolítill tími þar til að hann stóð aftur upp. Stuðningsmenn Golden State gátu þó andað léttar því Steph Curry slapp ómeiddur og átti eftir að skora 19 stig til viðbótar í öruggum sigri Golden State. Þriðji leikurinn er á sunnudaginn og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport en útsendingin hefst á miðnætti. Í spilaranum fyrir ofan má sjá þessa flugferð Stephen Curry upp í stúku frá því í fyrrinótt.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira