Strákarnir okkar í landsliðinu fengu þau tíðindi í morgunsárið að fulltrúar fjölmiðla væru mættir fyrir utan hliðið við hótel liðsins í hlíðunum við fjallabæinn Annecy í Frakklandi. Fastlega er reiknað með því að þar hafi verið fulltrúar bresku götublaðanna eða ljósmyndara í leit að dýrmætum skotum af strákunum okkar sem eru á vörum heimsbyggðarinnar.
Ljóst er að ýmislegt er breytt eftir að strákarnir okkar drógust gegn Englandi sem verður andstæðingur okkar í sextán liða úrslitum á mánudaginn. Breska pressan, þá sérstaklega götublöðin, eru dugleg í að snúa út úr orðum viðmælenda sinna og gera fréttir æsilegri en tilefni er til.
Sjá einnig:Það ver vel um strákana okkar á hótelinu í Annecy - myndir
Af þeim sökum hafa þjálfararnir Lars og Heimir meðal annars gripið til þess ráðs að banna viðtöl við starfsmenn landsliðsins en til þessa hefur verið hægt að ræða við fólkið í kringum landsliðið í kringum æfingar hér í Annecy. Það aðgengi snarminnkar núna og verður aðgengi íslensku pressunnar að strákunum afar takmarkað eins og annarra fulltrúa fjölmiðla hér ytra.
Byrjunarliðsmenn í París í gær hvíldu í dag en aðrir tóku æfingu í Annecy. Heimir og Lars svöruðu svo kalli fjölmiðla eftir æfingu eins og sjá má í fréttunum hér að neðan.
Enska pressan mætt fyrir utan hótel strákanna í Annecy

Tengdar fréttir

Lars: „Ég er kominn heim“ hitti mig beint í hjartastað
Íslenski landsliðsþjálfarinn talaði fallega um eitt helsta lag stuðningsmanna íslenska landsliðsins.

Heimir: Ætla ekki að svara sömu tannlæknaspurningunni 18 sinnum
Íslenska landsliðið neyðist til að takmarka aðgengi fjölmiðlamanna fyrir leikinn gegn Englandi.

Heimir: Menn voru bara að missa sig
Leikmenn, þjálfarar og starfslið Íslands missti sig úr gleði þegar strákarnir skoruðu sigurmarkið gegn Austurríki.