Lífið

Ólafur Arnalds og Baddi Z við tökur á tónlistarmynd

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Ólafur Arnalds og Baddi Z verða við tökur á myndinni Islandsongs næstu sjö vikur.
Ólafur Arnalds og Baddi Z verða við tökur á myndinni Islandsongs næstu sjö vikur. Vísir/Marínó Thorlacius/Vilhelm
Nú standa yfir upptökur á tónlistarmyndinni Island Song sem er samstarfsverkefni Ólafs Arnalds tónlistarmanns og Baldvin Z leikstjóra. Parið hefur valið sjö áfangastaði á Íslandi og er einn staður heimsóttur í hverri viku. Þar vinnur Ólafur lag með vel völdu tónlistarfólki frá hverjum stað sem áætlað er að gefa út eitt í einu vikulega næstu sjö vikurnar.

„Þetta er hugmynd sem gekk upphaflega út á það að fara og taka upp lög á flottum stöðum um landið. Svo datt mér í hug að fá alltaf einhvern með mér í hvert lag,“ útskýrir Ólafur um tilurð verkefnisins. „Þá geri ég tónlistina en svo vinnum við hana saman á staðnum. Hugmyndin er að búa til mynd sem sýnir tónlistarmenningu landsins sem er oft þannig að þeir sem vinna kaupfélaginu eru kannski snillingar þó fáir viti af því.“

 

Fyrsti gestur pabbi Ásgeirs Trausta

Upptökur á fyrsta laginu eru klárar en þar vann Ólafur með Einari Georg á Hvammstanga en hann er faðir tónlistarmanna Ásgeirs Trausta og Þorsteins úr Hjálmum og hefur samið texta þeirra þekktustu laga. Lagið sem hann og Ólafur unnu saman heitir Árbakkinn og kemur út á mánudag.

Stutt myndband sem sýnir hluta af gerð þess lags má sjá hér fyrir neðan en myndbandið verður sýnt í heild sinni á Vísi á mánudag.

Á heimasíðunni Islandsongs.is má sjá hvaða staði þeir félagar munu heimsækja næstu vikuna en þeir vilja ekkert gefa upp um það strax hverjum Ólafur ætlar að vinna með.Vísir/Islandsongs.is
Leita að sérstöku fólki

„Við erum að leita að sérstöku fólki. Við erum ekkert að binda okkur við það að þetta sé úr þeirri tónlist sem ég kem en samt líka. Við munum til dæmis vinna með kór og Sinfóníusveit Norðurlands á Akureyri, poppsöngvurum og organistum. Það verða engir þeir sömu og ég hef verið að vinna með áður.“

Myndin er unnin fyrir Universal sem gefur tónlist Ólafs út um allan heim. Stefnt er á að myndin verði tilbúin í október en áhugasamir geta fylgst með gangi mála á Facebook-síðu Ólafs sem og á sérstakri heimasíðu verkefnisins Islandsongs.is. Birt verða þar myndbönd en einnig verða beinar útsendingar frá upptökum sendar í gegnum Facebook síðuna.

Stefnt er á að tónlistarmyndin verði frumsýnd í völdum kvikmyndahúsum víðs vegar um heim samtímis.

Þetta er nú ekki í fyrsta skiptið sem þeir félagar Baddi Z og Ólafur Arnalds vinna saman. Ólafur hefur hingað til séð um tónlist við kvikmyndir Badda, bæði Vonarstræti og fyrstu mynd leikstjórans Óróa.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.