Fyrirtaka var í Aurum-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem ákveðið var hvenær aðalmeðferð málsins skuli fara fram. Mun aðalmeðferðin hefjast þann 19. október næstkomandi og standa í sjö til átta daga.
Upphaflega átti aðalmeðferðin að fara fram í apríl síðastliðnum en var frestað þar sem þrír sakborningar fóru fram á það að matsmenn yrðu fengnir til að leggja mat á virði Aurum á þeim tíma sem meint brot áttu sér stað.
Þeirri kröfu var hafnað af Hæstarétti en áður hafði rétturinn fallist á það að ákæruvaldið fengi að leiða fyrir dóminn sem vitni matsmenn sem lögðu mat á virði Aurum í einkamáli. Á meðal þeirra er Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags-og viðskiptaráðherra.
Í Aurum-málinu eru þeir Lárus Welding, Jón Ásgeir Jóhannesson, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson ákærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim. Ákæran snýst um sex milljarða króna lán sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd, í júlí 2008.
Ákæra var gefin út þann 12. desember 2012 og voru sakborningar sýknaðir af ákærunni í héraði í júní 2014. Tæpu ári síðar ógilti Hæstiréttur þann dóm þar sem hann féllst á þann málatilbúnað ákæruvaldsins að sérfróður meðdómari í málinu í héraði, Sverrir Ólafsson, hafi verið vanhæfur til að dæma í því vegna ættartengsla sinna við Ólaf Ólafsson sem var dæmdur í fangelsi fyrir aðild sína að Al Thani-málinu.
Í kjölfar ómerkingar Hæstaréttar var málið sent aftur heim í hérað. Þar fór sérstakur saksóknari, nú héraðssaksóknari, fram á það að dómsformaður í málinu, Guðjón St. Marteinsson, myndi víkja sæti vegna vanhæfis.
Hæstiréttur féllst á það og því var skipaður nýr dómsformaður, Barbara Björnsdóttir, en með henni í dómnum sitja þau Símon Sigvaldason, héraðsdómari, og Hrefna Sigríður Briem, sérfróður meðdómari.
Aðalmeðferð Aurum-málsins í október

Tengdar fréttir

Allar líkur á að aðalmeðferð Aurum-málsins frestist fram á haust
Aðalmeðferðin átti að hefjast í þessari viku.

Aurum-málið: Hafnaði kröfu ákærðu um dómkvadda matsmenn
Krafan var lögð fram í kjölfar þess að Hæstiréttur féllst á kröfu Ólafs Þórs Haukssonar, héraðssaksóknara, um að leiða fyrir dóm vitni sem lagt höfðu mat á verðmæti Aurum í einkamáli.