Lífið

Seljum allt frá gítarnöglum upp í flygla

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Starfsmenn Hljóðfærahússins að koma sér í gírinn, Arnar Freyr Gunnarsson, Sindri Már Heimisson, Arnar Þór Gíslason og Jón Kjartan Ingólfsson.
Starfsmenn Hljóðfærahússins að koma sér í gírinn, Arnar Freyr Gunnarsson, Sindri Már Heimisson, Arnar Þór Gíslason og Jón Kjartan Ingólfsson. Vísir/GVA
Hljóðfærahús Reykjavíkur tók til starfa í Templarasundi 3 þann 21. nóvember 1916. Það var stofnað af hinni dönsku Önnu Friðriksson og var fyrsta eiginlega sérverslunin í Reykjavík. Á ýmsu gekk í rekstrinum fyrstu árin og meðal þess sem við var að stríða á tímabili var bann við innflutningi á hljóðfærum vegna fjárhagsörðugleika í landinu.

Nú er Hljóðfærahúsið á 870 fermetrum í Síðumúla 20 og fagnar aldarafmæli sínu í dag, 19. nóvember með tónleikum frá 14.30 til 17. Þar koma fram Skólahljómsveit Kópavogs, Mugison, Soffía Björg með hljómsveit, Sigurður Flosason, Einar Valur Scheving ásamt Þóri Baldurssyni og Sálin hans Jóns míns.

„Hér verður mikið stuð,“ segir Sindri Már Heimisson framkvæmdastjóri og eigandi Hljóðfærahússins ásamt Lyfjum og heilsu. „Við eigum líka Tónabúðina á Akureyri sem er 50 ára á þessu ári. Pálmi Stefánsson stofnaði hana 1966 og Tónaútgáfuna líka og gaf mikið út af íslenskum plötum. Það er saga út af fyrir sig,“ bendir hann á.

Sindri segir starfið í Hljóðfærahúsinu ekki bara snúast um að selja fjögurra strengja fiðlur. „Markaðurinn hefur breyst og stækkað í allar áttir. Nýjungin er allskonar búnaður sem tengist tölvum og forritum svo við starfsfólkið erum í endurmenntun á hverjum degi.“

Hljóðfærahúsið er alhliða verslun sem selur allt frá gítarnöglum upp í flygla, líka hljóðkerfi, mixera, hátalara, snúrur og strengi að sögn Sindra.

„Við erum með stór umboð eins og Yamaha og Fender. Erum líka með eðal starfsfólk bæði hér og á Akureyri sem er spilandi og syngjandi í hljómsveitum úti um allar koppagrundir. Miklir snillingar.“

Spilið þið í vinnutímanum? „Já, erum sérstaklega hallir undir jólalög!“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. nóvember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.