Lífið

Gegndi fornum ábúanda

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Álfheiður er nýflutt að Galtastöðum í Flóa, þaðan sér hún til æskustöðvanna í Fljótshlíðinni út um glugga vinnustofunnar.
Álfheiður er nýflutt að Galtastöðum í Flóa, þaðan sér hún til æskustöðvanna í Fljótshlíðinni út um glugga vinnustofunnar.
„Krókur er gamall burstabær nærri Garðakirkju og þar hefur ekki oft verið haldin myndlistarsýning en bærinn sjálfur er safn og sýning um gamalt alþýðuheimili. 

Í Króki eru þrjár burstir og ein þeirra fyrir listamann, þar var ég að mála, en ég sýni í hlöðunni.“

 Þetta segir listakonan Álfheiður Ólafsdóttir. Hún kveðst hafa verið að mála eitthvað abstrakt þarna í Króki er einn af ábúendum á bænum fyrir meira en öld hafi vitjað hennar og sagt:

„Ætlarðu ekki að fara að mála eitthvað sem maður sér hvað er?“ „Ég auðvitað gegndi þessu og fór að mála búsmalann, kýr og kindur sem passa vel þarna inn í hlöðuna hjá gamla. Það er mikill friður sem fylgir þessum bæ og mynd af þessum manni hangir inni í gáfumannastofu, þar sem maður gengur hljóðlega um.“

Álfheiður er menntaður grafískur hönnuður frá Handíða-og myndlistarskólanum en byrjaði að mála 1997 þegar hún hafði orðið fyrir mikilli sorg. „Ég missti tvær stúlkur í röð, önnur fæddist andvana og hin þegar ég var hálfgengin með. Þá fór ég í artþerapíu og hef málað síðan.“

 Hún tekur fram að Jóhanna Halldórsdóttir altsöngkona og Helga Aðalheiður Jónsdóttir blokkflautuleikari séu með tónleika í Króki alla laugardaga í ágúst klukkan 14 og 16. Þær byrji í fjósinu og láti tónana berast inn í hlöðu gegnum fóðurgöt en komi svo inn í hlöðu. Svo sé safnið sjálft opið á sunnudögum milli klukkan 13 og 17 og sýningin líka.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. ágúst 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×